Tíska og hönnun

Á samning hjá Dior og DVF

Aníta Hirlekar segir það ótrúlegt tækifæri að komast á samning hjá stærstu hönnuðum heims.
Aníta Hirlekar segir það ótrúlegt tækifæri að komast á samning hjá stærstu hönnuðum heims.
„Það var frekar furðuleg tilfinning að fá símtal frá Christian Dior í Frakklandi sem var að bjóða mér að koma á samning til sín," segir Aníta Hirlekar, 24 ára fatahönnunarnemi frá Akureyri.

Aníta lauk nú í vor öðru ári í fatahönnun með áherslu á svokallað print, frá Central Saint Martins skólanum í London. Aníta mun eyða næsta ári á samningum hjá tveimur af stærstu fatahönnunarmerkjum heims. Í ágúst er hún á leið til Frakklands þar sem hún fer á samning hjá Christian Dior. Þar verður hún við hönnun á hátískulínu Dior. Eftir áramótin fer hún svo til Bandaríkjanna þar sem hún fer á samning hjá Diane Von Furstenberg. Þar mun hún starfa í hönnunarstúdíói fyrirtækisins.

„Christian Dior hafði samband við skólann minn, því hann er talinn mjög góður skóli, og óskaði eftir nemendum í starfsnám. Við vorum 26 sem sóttum um og 6 komust í viðtal. Ég var sú eina sem fékk samning," segir Aníta, bæði stolt og glöð yfir þeirri staðreynd.

Kennarar við skólann voru mjög ánægðir með Anítu þar sem enginn nemandi komst að í fyrra. Kröfur Christian Dior um hæfni nemenda eru mjög miklar og því um mikla viðurkenningu að ræða fyrir Anítu.

Aníta dúllaði sér við að hanna og sauma flíkurnar sínar í menntaskóla en ákvað eftir að hún kom til London að þetta væri það sem hún ætlaði að gera að starfsferli sínum.

Eftir að Aníta lýkur þriðja ári sínu á samningum, hannar hún útskriftarlínuna sína á fjórða árinu. „Það eru miklar líkur á því að fá vinnu eftir útskrift hjá þeim fyrirtækjum sem maður lýkur samningi hjá þannig að þetta er mjög spennandi tækifæri fyrir mig." - ls






Fleiri fréttir

Sjá meira


×