Greiða arf fyrirfram til þess að komast hjá erfðafjárskatti Hafsteinn Hauksson skrifar 28. desember 2010 18:44
Gífurleg aukning hefur orðið á því að fólk fái arf greiddan fyrirfram eftir að alþingi samþykkti að tvöfalda erfðafjárskatt. Þeir sem fá erfðafjárskýrslur sínar afgreiddar fyrir áramót sleppa við hækkunina. Efðafjárskattur hækkar úr 5 prósentum í 10 prósent um áramótin. Síðan Alþingi samþykkti þessa breytingu þann 18. þessa mánaðar hefur verið meiri erill en venjulega hjá sýslumannsembættum víða um land, þar sem fólk hefur í einhverjum tilfellum beðið í röðum eftir að leggja fram erfðafjárskýrslur vegna fyrirframgreidds arfs. Slíkar voru annirnar hjá Sýslumanninum í Reykjavík að hann átti ekki lausa stund til að veita fréttastofu viðtal í dag. Alexander G. Eðvardsson, yfirmaður skattasviðs KPMG, hefur orðið var við þessa aukningu. Hann segir umsóknirnar skipa tugum hjá sínu fyrirtæki, hingað til hafa þær verið örfáar yfir árið. Lögum samkvæmt miðast álagning skattsins við daginn þegar sýslumaður áritar erfðafjárskýrsluna, og því verður arfurinn skattlagður miðað við helmingi lægra hlutfall ef erfingjum tekst að fá afgreiðslu fyrir áramótin. Markmiðið er víðast að afgreiða flesta, eða alla, sem uppfylla skilyrði og skila öllum tilskyldum gögnum fyrir áramótin. Alexander segir þetta sömuleiðis geta haft áhrif á skattbyrði vegna auðlegðarskatts.
Mest lesið Alelda bíll á Emstruleið Innlent Skotárás á Times Square Erlent Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Erlent Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Innlent Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Innlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Fleiri fréttir Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Esjan snjólaus og það óvenju snemma Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Sjá meira