Landnámshænsnabóndinn: „Ég held ótrauður áfram“ 28. mars 2010 15:09 Tjörn á Vatnsnesi. Mynd/islenskarhaenur.is „
Mér líður bara ömurlega," sagði Júlíus Már Baldursson, þegar Vísir hafði samband við hann en útihúsið hans brann í nótt ásamt um 200 landnámshænum og tæplega þúsund eggjum sem áttu að klekjast út eftir þrjá daga. Júlíus býr á Tjörn í Vatnsnesi en hann var stærsti landnámshænuræktandi á Íslandi. Hann vann við það að bjarga stofninum úr útrýmingarhættu. Stofninn hans var orðinn 32 ára gamall þegar hann brann. Ekkert er eftir nema tíu hanar. „Þetta er menningararfur eins og íslenski hesturinn og sauðkindin eða geitin," sagði Júlíus Már sem er enn þá að jafna sig eftir eldsvoðann í nótt. Hann segir tjónið gífurlegt, það hlaupi á milljónum, fyrir utan tilfinningalega tjónið sem hann varð fyrir. Júlíus horfir á eftir vinnu sinni til þriggja áratuga. Slíkt er aldrei auðvelt. Alls eru um 2-3 þúsund landnámshænur til á Íslandi því er dauði dýranna í nótt mikil blóðtaka fyrir stofninn. Júlíus Már gefst þó ekki upp, hann segir fjölmarga hafa haft samband við sig í morgun og boðið sér hænur til þess að rækta. „Ég held ótrauður áfram, ég þarf bara fyrst að komast yfir þetta áfall," segir Júlíus en næst þarf hann að koma á rafmagni heima hjá sér auk þess sem til stendur að hreinsa upp brakið eftir nóttina.
Mest lesið Mótmæla heimsókn Ursulu von der Leyen Innlent Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Innlent „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Innlent „Raunhæfur möguleiki“ að hitamet falli á morgun Veður Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Erlent Fagna áttatíu ára afmæli millilandaflugs Íslendinga Innlent „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Innlent Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Innlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Maðurinn sem var stunginn í Mjóddinni liggur enn þungt haldinn Innlent Fleiri fréttir Fagna áttatíu ára afmæli millilandaflugs Íslendinga Mótmæla heimsókn Ursulu von der Leyen „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Leita logandi ljósi af nýju svæði undir kirkjugarð á Selfossi Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Barátta við illvígan sjúkdóm, furðuleg uppátæki fanga og svakalegar hitatölur Maðurinn sem var stunginn í Mjóddinni liggur enn þungt haldinn Gámurinn á bak og burt Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Sjá meira