Ölvað fimmtugt par ruddist inn í íbúð í Árbæ 26. febrúar 2010 14:34
Karl og kona á fimmtugsaldri ruddust inn í íbúð í Árbænum eftir hádegi í gær og höfðu þaðan á brott með sér ýmsa muni. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var par, sem var ölvað, var handtekið nokkru síðar í íbúð á öðrum stað í borginni. Þar innandyra fundust fyrrnefndir munir sem lögreglan haldlagði sem og exi sem þar var einnig að finna. Húsráðandinn í Árbænum, karl á fimmtugsaldri, var bólginn eftir "heimsóknina" en til einhverra átaka mun hafa komið. Nokkuð er um að bílum sé stolið á höfuðborgarsvæðinu og því vill lögreglan minna á að þeir séu ekki skildir eftir ólæstir og í gangi. Á þessu er misbrestur og það færa þjófar sér í nyt eins og mörg dæmi eru um. Síðast í gærkvöld kom mál af þessu tagi á borð lögreglu en þá var bíl stolið í austurborginni. Ökumaðurinn hafði skroppið inn í hús en skilið bílinn eftir á meðan ólæstan og með lykilinn í kveikjulásnum. Þegar maðurinn kom aftur að bílnum eftir að hafa lokið erindi sínu greip hann í tómt, bíllinn var á bak og burt. Kona um fertugt var handtekin í miðborginni í nótt en þar hafði hún reynt að brjótast inn í verslun. Konan hafði ekkert upp úr krafsinu en var þess í stað færð í fangageymslu lögreglunnar við Hverfisgötu. Karl á sextugsaldri var einnig handtekinn í tengslum við rannsókn málsins. Piltur um tvítugt varð fyrir líkamsárás í miðborginni í nótt. Sá var sleginn í andlitið og fékk skurð á augabrún. Árásarmaðurinn var á bak og burt þegar lögreglan kom á vettvang en mennirnir höfðu báðir verið í samkvæmi í heimahúsi. Við eftirgrennslan kom í ljós að enginn í samkvæminu kannaðist við árásarmanninn og virðist því hafa verið um óboðinn gest að ræða.
Mest lesið Íranir ráðast á herstöð Bandaríkjamanna í Katar Erlent Flaug í einkaflugi með Støre Innlent Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Innlent „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Innlent Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Innlent Fleiri handteknir í Borgarnesi Innlent Kona féll í Svöðufoss Innlent Tuttugu og tveir látnir eftir sjálfsmorðsárás í kirkju Erlent Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Innlent Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Innlent Fleiri fréttir Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Neita öll sök í Gufunessmálinu Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi Hyggst setja RÚV „talsverðar skorður“ í þágu einkarekinna fjölmiðla Handtekinn fyrir að sveifla hamri Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Álftapar með fjóra unga við Hótel Rangá vekur athygli Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Sjá meira