Innlent

Kristnifræðikennarar telja illa vegið að sér

Stjórn félags kennara í kristnum fræðum, siðfræði og trúarbragðafræðum, vill koma á framfæri óánægju með drög að tillögum Mannréttindaráðs Reykjavíkur um ýmis atriði er lúta að kennslu greinarinnar og samstarfi skóal og trúfélaga.

Í yfirlýsingu frá félaginu segir orðrétt: „ Í tillögum ráðsins þykir okkur vegið að faglegum heiðri kennarastéttarinnar."

Svo segir orðrétt: „Við viljum benda borgaryfirvöldum á að kennarar virða sjálfsagðan uppeldisrétt foreldra. Almenna kennslu í trúarbragðafræðum á ekkert foreldri/forráðamaður að þurfa að óttast því kennarar eru meðvitaðir um hlutverk sitt.

Kennurum er einnig treystandi hvað varðar val á samstarfsaðilum í vettvangsferðum og útfærslu kennsluhugmynda. Það er skoðun stjórnar félagsins að virða beri sjálfstæði skólanna og styrkja þá enn frekar í samstarfi og samskiptum við nærsamfélag sitt."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×