Iðgjöld hækka á meðan eigendur taka út eignir fyrir milljarða Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 20. október 2010 18:32
Iðgjöld tryggingafélaganna hækkuðu um nær þrjátíu prósent á tveggja ára tímabili samkvæmt úttekt Neytendasamtakanna. Á sama tíma tóku eigendur þriggja stærstu félaganna út úr þeim eignir fyrir rúma 42 milljarða króna. Neytendasamtökin létu gera verkefnisskýrslu fyrir nokkru og bar skýrslan nafnið Þrautir neytenda á sviði vátrygginga. Í skýrslunni kemur fram að iðgjöld vátrygginga hækkuðu verulega á árunum 2006 til 7 eða um 27,6% á meðan almennar verðbreytingar á sama tíma voru 12,5%. Því hafi verið um mikla raunhækkun að ræða og tryggingaiðgjöld orðið stór liður í útgjöldum heimilanna. Iðgjöldin hækkuðu einnig talsvert umfram hækkun tjónakostnaðar. Bílatryggingar hækkuðu t.a.m. um 28% á tímabilinu á meðan t.d. bílar, varahlutir, viðgerðir og viðhald hækkaði að meðaltali um 8,9%. Sé litið á ársreikninga þriggja stærstu tryggingafélaganna; Sjóvá, Vís og TM má sjá að á sama tíma og iðgjöldin hækkuðu hvað mest náðu arðgreiðslur og úttektir hluthafa nýjum hæðum. Sé litið til þeirra tveggja ára sem iðgjöldin hækkuðu hvað mest, 2006 til 7, þá tóku hluthafar um 42 milljarða króna út úr félögunum, munar þar mestu um úttektir eigenda Vátryggingafélags Íslands. Inni í þessari upphæð eru rúmlega 18 milljarða króna arðgreiðslur til hluthafa, mestur hluti þeirra fór til hluthafa Sjóvár eða um 13 milljarðar króna. Með öðrum orðum að á sama tíma og hluthafar tryggingafélaganna högnuðust um gríðarlegar fjárhæðir borguðu heimilin í landinu hærri iðgjöld en fyrr, ef marka má úttekt Neytendasamtakanna.
Mest lesið „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Innlent „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ Innlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Erlent Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein Erlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Fleiri fréttir „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Viðreisn velur oddvita „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Rýnt í Epstein-skjölin, prófkjör Viðreisnar og árás ungmenna „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Fjórðungur kosið í prófkjöri Viðreisnar Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Sjá meira