Fjárhirsla fríkirkjunnar Hjalti Hugason og Sigurður Árni Þórðarson skrifar 18. desember 2010 05:30 Sigurður Árni Þórðarson, doktor í trúfræði Síðasta sunnudag var kveikt á hirðakertinu á heimilum og í kirkjum þjóðarinnar til að minna okkur á fjárhirðana í jólaguðspjallinu. Þeir hirtu ekki fé, heldur voru dyggir gæslumenn þess. Sálnahirðir Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík, sr. Hjörtur Magni Jóhannsson, hefur á undangegnum misserum tjáð sig reglulega í fjölmiðlum, t.d. í Fréttablaðspistli 10. desember. Efni greinarinnar og reyndar margra útvarpsprédikana fríkirkjuprestsins varðar aðeins fé og eignir. Fyrir hönd Fríkirkjunnar í Reykjavík krefst hann hluta þess fjár sem ríkið geldur þjóðkirkjunni nú sem afgjald af jörðum sem áður voru eign kirkjunnar. Þó var eignarhald á jörðunum óumdeilt þegar þær voru afhentar ríkinu (1907 og 1997-8). Í grein sinni setur sr. Hjörtur Magni samasemmerki milli þessara eigna og „hins sameiginlega trúar- og menningararfs sem hefur mótað sjálfsmynd, samkennd og þjóðarvitund okkar." Tengingin er óraunhæf. Annars vegar er um að ræða hagfræðilegar stærðir og hins vegar hugrænar.Hver á kirkjujarðirnar? Í túlkun á „eignasögu" kirkjunnar stiklar sr. Hjörtur Magni léttilega yfir staðreyndir. Hann telur að kirkjueignir hafi verið illa fengnar á miðöldum og loks afhentar þjóðkirkjunni með „siðlausum samningi" fyrir aðeins 13 árum. Á fyrstu öldum kristni í landinu voru allar kirkjubyggingar (að dómkirkjum frátöldum) í einkaeigu. Tryggja varð rekstur þeirra þannig að umhirða kirkjueiganda réði ekki úrslitum um ástand þeirra. Markmiðið var að jarðeignir stæðu undir rekstri og viðhaldi kirkjubygginga. Þannig varð höfuðstóllinn til. Síðar fóru fleiri að gefa. Ekki er útilokað að einhvern tíma hafi ágirnd ráðið för. Það er þó alhæfing að græðgi sé helsta skýringin á eignasafni kaþólsku kirkjunnar á miðöldum. Á siðaskiptatíma var smám saman tekið að flytja nýja guðfræði í kirkjum landsins sem áður þjónuðu kaþólskum sið. Þær voru áfram miðpunktar sömu sókna og áttu allar eignirnar. Siðaskiptatíminn var breytingarskeið í hinu innra en ekki ytra. Eignarhald eða breyting þess var ekki mál þess tíma.Eignaframsal á 20. öld Á öndverðri 20. öld var við margháttaðan vanda að etja í íslensku samfélagi. Skipulag og rekstur þjóðkirkjunnar var óhagkvæmt. Eignir kirknanna nýttust ekki vel með því að halda úti undirmönnuðum sóknum og prestaköllum sem ekki gátu staðið undir helgihaldi. Þeim var því fækkað og eignir færðar milli kirkna og sókna. Menn tóku nú að líta svo á að jarðirnar væru sameign sóknanna í landinu. Hátt hlutfall leiguábúðar stóð á sama tíma í vegi fyrir framförum í landbúnaði. Efnahagslíf þjóðarinnar þróaðist smám saman yfir í peningahagkerfi í stað hagkerfis vöruskipta. Reynt var að efla landbúnað með því að losa um jarðir í opinberri eigu þar á meðal kirkjujarðir. Þjóðkirkjan fól ríkinu forræði yfir uppistöðunni í eignasafni sínu (1907) gegn því að það tryggði rekstur hennar fjárhagslega eftir hagræðinguna. Alla 20. öldina ríkti síðan sá skilningur að ríkinu bæri að ráðstafa jörðunum á þann hátt sem nýttist sem flestum, þ.e. þjóðinni. Hið forna eignasafn rýrnaði vegna þess að ríkið varð að huga að hagsmunum fleiri en kirkjunnar. Það gat því ekki alltaf krafist hæsta verðs eða jafnvel raunvirðis fyrir jarðir sem seldar voru. Á 20. öld naut því þjóðin kirkjujarðanna með ýmsu móti og gerir enn.Jarðasamningur ríkis og kirkju Við lok 20. aldar var samningur gerður milli ríkis og kirkju um hinar fornu kirkjujarðir. Tilgangurinn var að höggva á næsta óleysanlegan hnút: Hvernig var mögulegt að ráðstafa jörðunum áfram á sem hagfelldastan hátt fyrir sem stærsta hluta þjóðarinnar? Einfaldasta lausnin var að ríkið eignaðist jarðirnar. Það var önnur hliðin á samningnum. Hin hliðin laut eðlilega að því hvað væri eðlilegt gjald til kirkjunnar. Samningurinn var gerður á grundvelli sem var lagður 1907, sem sé að ríkið tryggði rekstur kirkjunnar innan skilgreindra marka. Samkomulagið er á engan hátt ósiðlegt enda voru samningamenn ríkis og þjóðkirkju meðvitaðir um lög, reglur, sögu, sið, fé og framtíð. Í anda nútímalegs eignarréttarskilnings er hægt að hagnýta afrakstur eignanna þar sem þess er helst þörf. Þjóðin nýtur afgjalds eignanna að nokkru sameiginlega þar sem þjónusta þjóðkirkjunnar stendur öllum til boða án kirkjuaðildar eða trúarjátningar. Um aldamótin 1900 var ákaft rætt um tengsl og/eða aðskilnað ríkis og kirkju. Flestum þótti allt stefna í aðskilnaðarátt. Mörgum þótti þó ekki ganga nægilega hratt að losa kirkjuna undan yfirráðum ríkisins. Þeir sögðu sig því úr þjóðkirkjunni og nýttu rétt sinn til að stofna ný trúfélög, það á meðal Fríkirkjuna í Reykjavík. Þeir völdu með öðrum orðum milli þjóðkirkjunnar og eignanna á aðra hlið og hugsjónar um frjálsa kirkju á hina. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og fríkirkjuhreyfingin orðið að fríkirkjustofnun, með eignir og skuldir, tekjur og gjöld. Getur hún nú samt sem áður gert tilkall til afraksturs af hinum kirkjueignunum? Það er ekki menningarleg, guðfræðileg eða siðfræðileg spurning heldur ræðst svarið fyrst og fremst af eignarréttarlegum sjónarmiðum — því miður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er bara best að þegja? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun Handrit ofbeldismannsins. Gulldrengir og dómstóll götunnar Hulda Hrund Guðrúnar Sigmundsdóttir,Tanja Mjöll Ísfjörð Magnúsdóttir Skoðun Hildur Björnsdóttir og bílastæðin í borginni Karólína M. Jónsdóttir Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Lengjum opnunartíma leikskóla Aron Ólafsson Skoðun Þau sem hafna framförum Birkir Ingibjartsson Skoðun Börn í Laugardal fá ekki heitan mat í skólanum Jakob Jakobsson Skoðun Ég er líka að taka fullan þátt í samfélaginu! Alina Vilhjálmsdóttir Skoðun Daglegt líf eldri borgara í Reykjavík: Afhverju ekki eins og í Regínu? Andrea Edda Guðlaugsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bestum borgina fyrir skynsegið fólk! Olga Margrét Cilia skrifar Skoðun Pólland að verða efnahagsveldi - kallar eftir fleira fólki Jónas Guðmundsson skrifar Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson skrifar Skoðun Ég lifi í draumi! Ingvar Örn Ákason skrifar Skoðun Neyðarkall úr Eyjum Hallgrímur Steinsson skrifar Skoðun Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason skrifar Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald skrifar Skoðun Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Hafnarfirði Örn Geirsson skrifar Skoðun „Hvaða plön ertu með í sumar?“ Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Ef ég C með hattinn, fer ég örugglega í stuð Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Siglunes, já eða nei? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Kostnaður, ójöfnuður og þátttaka barna í íþróttum á Akureyri Sigrún Steinarsdóttir skrifar Skoðun Heimsveldið og hjúkrunarkonan Haukur Þorgeirsson skrifar Skoðun Lægri vextir eru STÓRA MÁLIÐ Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Tækni með tilgang Einar Stefánsson skrifar Skoðun Bretland og Norðurslóðir Bryony Mathew skrifar Skoðun Þegar óttinn verður að röksemd Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod skrifar Skoðun Hversu oft má samgöngukerfi bregðast? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Hafnarfjörður, höfnin, samgöngur og samfélagið Guðmundur Fylkisson skrifar Skoðun Eru huldufólk enn til eða höfum við hætt að sjá það? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Öruggt húsnæði eru mannréttindi - líka í Hafnarfirði Ester Bíbí Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Samgöngusáttmáli er ekki heilagur. Ekkert er slegið í stein Símon Þorkell Símonarson Olsen skrifar Skoðun Hvernig get ég aðstoðað? Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Samfélagið í fyrsta sæti Daði Pálsson skrifar Skoðun Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar Skoðun Menntamál í Hafnarfirði: Raunverulegar lausnir fyrir nemendur og starfsfólk Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skrölt á gömlum Land Cruiser í þjóðaratkvæðagreiðslu Bjarki Fjalar Guðjónsson skrifar Sjá meira
Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun
Handrit ofbeldismannsins. Gulldrengir og dómstóll götunnar Hulda Hrund Guðrúnar Sigmundsdóttir,Tanja Mjöll Ísfjörð Magnúsdóttir Skoðun
Daglegt líf eldri borgara í Reykjavík: Afhverju ekki eins og í Regínu? Andrea Edda Guðlaugsdóttir Skoðun
Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Kostnaður, ójöfnuður og þátttaka barna í íþróttum á Akureyri Sigrún Steinarsdóttir skrifar
Skoðun Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod skrifar
Skoðun Samgöngusáttmáli er ekki heilagur. Ekkert er slegið í stein Símon Þorkell Símonarson Olsen skrifar
Skoðun Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar
Skoðun Menntamál í Hafnarfirði: Raunverulegar lausnir fyrir nemendur og starfsfólk Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar
Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun
Handrit ofbeldismannsins. Gulldrengir og dómstóll götunnar Hulda Hrund Guðrúnar Sigmundsdóttir,Tanja Mjöll Ísfjörð Magnúsdóttir Skoðun
Daglegt líf eldri borgara í Reykjavík: Afhverju ekki eins og í Regínu? Andrea Edda Guðlaugsdóttir Skoðun