Náttúran sýndi mátt sinn og megin Andri Ólafsson og Sigríður Mogensen skrifar 14. apríl 2010 19:04
Náttúran sýnir mátt sinn og megin undir Eyjafjöllum. Gosið undir Eyjafjallajökli hefur brætt stóran hluta jökulsins og vatnið flæðir niður suðurhlíðar jökulsins og norðan megin niður í Markarfljót. Enn er þó nóg eftir af ís fyrir gosið að bræða. Hlaupið í Markarfljóti virðist aftur vera að færast í aukana eftir að hafa rénað nokkuð síðdegis. Sjöhundruð manns þurftu að flýja heimili sín í skyndingu í nótt þegar almannavarnir lýstu yfir hættustigi vegna eldgoss undir toppbungu Eyjafjallajökuls. Jörðin rifnaði í sundur og logandi eldurinn hóf að bræða jökulinn í þann mund sem flestir voru að skríða á fætur í morgun. Gríðarlegt magn af vatni streymdi hratt frá gígnum efst á jöklinum í norður í átt að Markarfljóti. Vatnsyfirborðið hækkaði hratt og ógnaði bæði vegfarendum og mannvirkjum. Þjóðvegi eitt var lokað strax í morgun og um hádegi voru rofin skörð í veginn til að vernda nýju brúna yfir markarfljót. Fljótið náði samt sem áður að brjóta sér leið í gegnum veginn. Jökulvatn og aur tók svo að streyma frá jöklinum beint niður suðurhlíðar Eyjafjallajökuls. Hvorki hefur frétst af tjóni á fólki né skepnum, en nokkurt eignartjón kannað hafa orðið vegna þess. Eftir því sem leið á daginn óx krafturinn í hlaupinu í Markarfljóti og náði það hámarki um klukkan 2. Eftir það fór að draga úr hlaupinu. Myndir sem myndatökumenn Stöðvar 2 náðu í dag sýna vel kraft hlaupsins, en aftur á móti sést á myndum sem teknar voru fyrir rúmri klukkustund að heldur hefur dregið úr hlaupinu. Nú rétt fyrir fréttir bjuggust menn þó við annarra hrinu í fljótinu. Mannvirki við Landeyjahöfn og framkvæmdir þar sluppu vel, þó þær standi skammt frá þar sem Markarfljótið rennur til sjávar. Lögregla hefur vaktað svæðið í allan dag og passað að fólk sé ekki á bannsvæðum. Bændum var í morgun hleypt inn á svæðið til að sinna skepnum, en þeir voru beðnir um að yfirgefa bæina að nýju þegar vöxtur hljóp í ár.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Fleiri fréttir „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Sjá meira