Innlent

Óvíst með kröfu um hærri framfærslutekjur innflytjenda

Karen Kjartansdóttir skrifar

Forsvarsmenn Útlendingastofnunnar virðist enn ekki hafa gert upp við sig hvort áfram eigi að krefjast hærri framfærslutryggingar af útlendingum en Íslendingum.

Fréttastofa Stöðvar 2 benti á í desember í fyrra að viðmið um lágmarks upphæð til framfærslu væru ólík á Íslandi eftir því hverrar þjóðar fólkið væri. Íslendingar þyrftu sem sagt meira fé til að geta komist af heldur en fólk af öðru þjóðerni.

Þegar um var að ræða Íslendinga miðaðist lágmarksframfærsla við framfærslustuðul sveitarfélaganna, um 125 þúsund krónur fyrir skatta. En þegar um var að ræða útlendinga miðuðu reglur Útlendingastofnunar um framfærslu við sömu upphæð en eftir skatta.

Stuðst hafði verið við þessi viðmið frá því haustið 2008.

Vegna þessara viðmiða var til að mynda ungir konu frá Tælandi synjað um búsetuleyfi. Mánaðarlaun hennar voru þó um 175 þúsund krónur að meðaltali hjá Þvottahúsi Ríkisspítalanna. Samkvæmt reglum Útlendingastofnunar þótti ekki tryggt að hún gæti framfleytt sér á þeim launum, jafnvel þótt hún væri talsvert yfir lágmarkstekjum Íslendinga.

Útlendingastofnun viðurkenndi þá að ekki væri ljóst hvort þessi viðmið stæðust. Málið yrði skoðað og á meðan yrðu engar íþyngjandi ákvarðanir teknar um búsetuleyfi.

Síðan hafa liðið um tæpir þrír mánuðir en ekkert hefur mátt hafa eftir Útlendingastofnun um málið opinberlega.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×