Innlent

Forseti telur sigri stolið af sér

Kosið í Afganistan Eftirlitsnefnd telur að allt að fjórðungur atkvæða í forsetakosningunum sé ógildur vegna svindls.
Mynd/AP
Kosið í Afganistan Eftirlitsnefnd telur að allt að fjórðungur atkvæða í forsetakosningunum sé ógildur vegna svindls. Mynd/AP

Nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna hefur úrskurðað að fjöldi atkvæða í forsetakosningum í Afganistan í ágúst sé ógildur vegna kosningasvindls.

Stjórnvöld í Kabúl hafa ekki staðfest þetta en þó virðist sem kjósa þurfi að nýju milli þeirra tveggja frambjóðenda sem flest atkvæði fengu í forsetakosningunum.

Áður hafa stjórnvöld sagt að niðurstaða kosninganna hafi verið sú að Hamid Karzai, núverandi forseti, hafi fengið 55 prósent atkvæða og væri því réttkjörinn til áframhaldandi setu á forsetastóli með meira en helmings fylgi í fyrstu umferð. Ef marka má nýjustu fréttir fékk Karzai hins vegar aðeins 48 prósent atkvæða og þarf því að etja kappi við þann sem næstflest atkvæði fékk, Abdullah Abdullah utanríkisráðherra. Samkvæmt upphaflegu talningunni fékk Abdullah 28 prósent atkvæða.

Karzai forseti hefur sjálfur sagt að hann hafi sigrað í kosningunum strax í fyrstu umferð en kosningaeftirlitsmenn segja sönnunargögn fyrir svindli vera skýr. BBC segir Karzai vera bálreiðan vegna þessarar nýju stöðu. Forsetinn telji að vestræn ríki séu að reyna að hafa af honum sigurinn. Hann muni gera allt sem hann geti til að koma í veg fyrir aðra umferð kosninganna. - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×