Myndi skipta á öllum verðlaunum fyrir sigur í deildinni Henry Birgir Gunnarsson skrifar 22. mars 2009 12:30 Gerrard hefur verið að spila frábærlega í vetur. Nordic Photos/Getty Images
Steven Gerrard fer ekkert leynt með hver sé æðsti draumur sinn með Liverpool. Hann segist vera til í að skipta á hvaða verðlaunum sem er fyrir sigur í ensku deildinni. Það eru orðin tæplega 20 ár síðan Liverpool vann síðast ensku deildina og ljóst að leikmenn líkt og stuðningsmenn eru orðnir langþreyttir á því að landa ekki stóra titlinum heima. Gerrard segir einnig í viðtali við News of the World að það segi mikið um lið Liverpool að rætt sé um að hann sé besti knattspyrnumaður heims í dag. Hafa menn á borð við Zinedine Zidane og Johan Cruyff haft á orði að Gerrard sé sá besti þessa dagana. „Það eru margir hjá okkur sem eiga skilið klapp á bakið fyrir þá staðreynd að maður eins og Cruyff segi að við séum það lið sem önnur lið Evrópu hræðast. Margir hafa sagt fallega hluti um okkur og það segir ýmislegt um frammistöðuna," sagði Gerrard. „Hvað varðar að ég sé sagður sá besti í heimi þá er alltaf gaman að heyra slíkt, sérstaklega þar sem það eru frábærir leikmenn í boltanum í dag. Ég reyni að lesa ekki of mikið úr því en ef fólk segir slíka hluti þá er það hrós fyrir liðið. Maður lítur aðeins vel út ef maður er með góða menn í kringum sig," sagði Gerrard hógvær. „Það er alltaf gaman að njóta virðingar en það sem gleður mest er að vinna titla. Ef við vinnum ensku deildina í ár þá mun sá titill fara á stall með Istanbúl sem eitt mesta afrek í sögu félagsins. Ég hef sagt áður að ég myndi skipta á öllum verðlaunum mínum núna og síðar fyrir sigur í deildinni í ár," sagði Gerrard.
Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Sjá meira