Kosningakerfi Alþingis stíflað vegna grófrar neftóbaksneyslu 11. nóvember 2009 14:44
Þingmaður Hreyfingarinnar, Margrét Tryggvadóttir hélt ræðu á Alþingi undir liðnum störf Alþingis fyrr í dag og gagnrýndi þar harðlega neftóbaksneyslu þingmanna. Afleiðingar þessarar neyslu er meðal annars að kosningakerfi Alþingis virkar ekki alltaf sem skyldi vegna þess að kosningahnappar tóbaksþingmannanna stíflast af grófum kornum tóbaksins. „Það er ótrúlega mikið um þetta. Maður hefði aldrei trúað því," segir Margrét um þennan slæma ávana þingmanna en svo mikið er um þetta að hún sá sig knúna til þess að halda ræðu og hvetja þingmenn til þess að leggja af þessum ósið. „Mér finnst þetta ógeðslegt en það er náttúrulega smekksatriði," segir Margrét og bendir á að það sé talsvert ónæði af tóbakinu. Meðal annars sé mikil og sterk lykt af því. Hún bendir þó á að sumir þingmenn fara ágætlega með þetta. Aðrir talsvert verr. Allir þeir sem neyta tóbaksins eru karlmenn að sögn Margrétar. Hún bendir svo á að þingmenn mega ekki fara með mat inn í salinn né drykki utan vatns. Þá má ekki reykja inn í byggingunni, „og mér finnst að þessi tóbaksnotkun ætti líka að vera bönnuð," segir Margrét sem hefur skorið upp herör gegn tóbaksunnendum þingsins. Þess má geta að neftóbak er meinlegt heilsu manna. Á Vísindavef Háskóla Íslands segir eftirfarandi: „Í einum skammti af reyklausu tóbaki er mörgum sinnum meira magn af nikótíni en í einni sterkri sígarettu. Nikótín er eitt kröftugasta fíkniefni sem þekkt er og er sennilega enn meira vanabindandi en efni á borð við heróín og kókaín. Nikótín hefur margvísleg áhrif á líkamann sem öll verður að telja skaðleg. Það örvar hjartað og veldur æðasamdrætti en í sameiningu leiðir þetta til hækkaðs blóðþrýstings og getur þar verið um verulega hækkun að ræða. Hækkaður blóðþrýstingur eykur álag á hjarta og æðar og getur leitt til hjarta- og æðasjúkdóma, meðal annars kransæðasjúkdóms."
Mest lesið Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Erlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Innlent Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Innlent Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Innlent Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Erlent Fleiri fréttir Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Óróinn hríðfellur og goslok líklega í aðsigi Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Viðkvæm gögn í höndum Bandaríkjamanna og eftirlit lögreglu „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Öryggi á ferðamannastöðum: Ríkið geti talist brotlegt við mannréttindasáttmála Mikill kraftur í íslensku atvinnulífi Harma að upplýsingar um mengað vatnsból hafi ekki borist strax til íbúa Fagna frestun framkvæmda í Heiðmörk Umdeildum framkvæmdum frestað og mengun í drykkjarvatni Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Allir blása í Landeyjahöfn Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Fimm vistaðir í fangaklefa eftir hópslagsmál Sjá meira