Guðjón: Eins og dagur og nótt Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. mars 2009 16:46 Guðjón Þórðarson, stjóri Crewe. Nordic Photos / Getty Images
Guðjón Þórðarson segir að það sé gríðarmikill munur á liði Crewe í dag og þegar hann kom til félagsins um áramótin síðustu. Hann var í dag útnefndur besti knattspyrnustjóri febrúarmánaðar í ensku C-deildinni en undir stjórn Guðjóns vann Crewe fjóra af fimm leikjum sínum. „Þetta er eins og dagur og nótt," sagði Guðjón spurður um muninn á liði sínu nú og þegar hann kom fyrst til þess. „En það er samt mikil vinna eftir. Ég missti til að mynda tvo mikilvæga leikmenn í meiðsli - bæði miðvörð og framherja - og get ekki sett menn í þeirra stöður eru jafngóðir. Þó svo að ég sé með stóran hóp má ég ekki við því að missa mína sterkustu menn." Guðjón hefur náð að stýra Crewe af fallsvæði deildarinnar en liðið er þó langt frá því hólpið. „Við ætlum að halda okkur uppi en ég verð að vera raunsær - það er mikil vinna eftir. Það eiga eftir að koma leikir með slæmum úrslitum," sagði Guðjón. Hann fékk fyrir skömmu Gylfa Þór Sigurðsson að láni frá Reading og hefur hann þegar komið við sögu í tveimur leikjum hjá sér. „Hann spilaði hálfan leik á móti Brighton og svo allan síðasta leik þar sem hann var með skárri mönnum," sagði Guðjón og átti þar við leikinn gegn Carlisle á þriðjudagskvöldið. Crewe tapaði honum. „En þetta er strákur sem hefur fullt af hæfileikum. Hann þarf bara að gefa sér tíma til að þroskast." Lánssamningur Gylfa gildir í einn mánuð en Guðjón segir að það sé möguleiki á því að hann verði hjá félaginu til loka leiktíðarinnar.
Mest lesið „Einn af mínum bestu leikjum á tímabilinu“ Körfubolti „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Enski boltinn Stjarnan - Tindastóll 97-103 | Stólarnir knúðu fram oddaleik Körfubolti „Hefði viljað fá tvær vítaspyrnur“ Fótbolti ÍBV - Breiðablik 1-2 | Hægt og hugmyndasnautt Íslenski boltinn Antonelli hélt uppteknum hætti Formúla 1 Vinicius kom í veg fyrir að Barcelona yrði sófameistari Fótbolti Sinner tók fram úr goðsögnum með glæstum sigri Sport „Sem betur fer slapp þetta“ Fótbolti „Vitum að þessir gæjar búa yfir gríðarlegum gæðum“ Fótbolti Fleiri fréttir „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Tottenham kom sér upp úr fallsæti Ferguson fluttur á spítala Rúlluðu Palace upp og komnir í Evrópusæti Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Isak aftur meiddur Sjáðu öll mörkin úr enska boltanum: Gyökeres og Saka í banastuði fyrir Skytturnar Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Benóný lauk deildinni á marki og fer í umspilið Skytturnar með sex stiga forystu á toppnum Tap West Ham gefur Tottenham von Hollywood-liðið missir af umspili og Ipswich í ensku úrvalsdeildina Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Sjá meira