Halldór Orri: Hefðum átt að setja mark á þá snemma leiks Ómar Þorgeirsson skrifar 6. ágúst 2009 22:45 Halldór Orri Björnsson. Mynd/Valli
Framherjinn Halldór Orri Björnsson bar fyrirliðabandið hjá Stjörnunni í 1-4 tapi liðsins gegn FH í Pepsi-deildinni í kvöld í fjarveru Daníels Laxdal sem tók út leikbann. Halldór Orri var svekktur í leikslok og taldi Stjörnumenn hafa farið illa að ráði sínu með að hafa ekki náð að nýta sér betur ágætan leikkafla liðsins á upphafsmínútunum til þess að skora mark. „Svekkelsið er talsvert sérstaklega í ljósi þess sem mér fannst við byrja leikinn af krafti og það hefði verið lag að setja eitt mark á þá snemma leiks. Í stað þess að fá mark beint í andlitið eftir að við höfðum verið að skapa meiri hættu. Við duttum svolítið niður eftir það og þeir ná að bæta við öðru marki. Þegar þriðja markið kemur svo snemma í síðari hálfleik þá var þetta orðið erfitt en við gáfumst ekkert upp og náum að pota inn einu marki," segir Halldór Orri. Halldór Orri var ennfremur svekktur með að tapa á heimavelli í kvöld en Stjörnumenn höfðu ekki tapað deildarleik þar í rúmt ár og unnið þar sex af sjö leikjum sínum í Pepsi-deildinni fram að leiknum í kvöld. „Það hlaut að koma að því en virkilega leiðinlegt að það hafi þurft að gerast þar sem við töluðum um að vinna þá fjóra heimaleiki í deildinni sem við áttum eftir í sumar. Það gekk ekki en það þýðir ekki að hugsa meira um það. Nú er það bara næsti leikur og það er fínt að fá að spila strax aftur á sunnudag eftir svona útreið eins og í kvöld," segir Halldór Orri.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Enski boltinn Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Íslenski boltinn Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Enski boltinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport Fleiri fréttir Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Sjá meira