Enski boltinn

Davies úr leik í nokkrar vikur

Nordic Photos/Getty Images

Miðjumaðurinn Mark Davies hjá Bolton getur ekki leikið með liði sínu næstu vikurnar vegna hnémeiðsla að sögn knattspyrnustjórans Gary Megson.

Davies er U-21 árs landsliðsmaður Englands og var keyptur til félagsins frá Wolves í janúarglugganum. Hann hefur staðið sig vel hjá Bolton og verður því væntanlega sárt saknað á lokasprettinum þar sem Bolton er enn í fallhættu þrátt fyrir að vera í 12. sæti deildarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×