Innlent

Breytingar á dreifingu Fréttablaðsins

Breytingar verða gerðar á dreifingu Fréttablaðsins í lok október. Eftir breytingarnar verður frídreifing blaðsins á höfuðborgar­svæðinu og á suðvesturhorninu, Borgarnesi, Akranesi, Árborg og Reykjanesi, og Akureyri. Á öðrum stöðum mun Fréttablaðið fást í lausasölu á kostnaðarverði.

Fréttablaðið verður því aðgengilegt hringinn í kringum landið í fyrsta skipti frá stofnun árið 2001.

Að sögn Ara Edwald, útgáfustjóra Fréttablaðsins, er ástæðan fyrir þessum breytingum fyrst og fremst sú að auglýsingamarkaðurinn hefur dregist svo saman að hann stendur ekki undir jafn stóru upplagi og áður.

„Við erum tilneydd til að rifa seglin vegna efnahagsástandsins. Miklar verðhækkanir á dagblaðapappír á alþjóðlegum mörkuðum og mjög óhagstætt gengi krónunnar valda okkur að auki erfiðleikum við að gefa blaðið út í eins stóru upplagi og við kjósum."

Ari bendir á að sterk staða Fréttablaðsins á auglýsingamarkaðinum tryggi eftir sem áður að mögulegt sé að halda úti öflugu blaði sem þjónusti lesendum á fjölbreyttan hátt.

„Það er hagkvæmast fyrir okkur að dreifa blaðinu á þéttbýlis­stöðunum á suðvesturhorninu og á Akureyri. Sá stóri og tryggi lesendahópur sem við höfum á þessum svæðum stendur í raun undir rekstri blaðsins. Við finnum hins vegar vel fyrir því að eftirspurnin eftir Fréttablaðinu er mjög mikil í hinum dreifðari byggðum landsins. Að bjóða blaðið á kostnaðarverði er leið okkar til að mæta þessari eftirspurn því að sjálfsögðu viljum við að blaðið sé lesið sem víðast."

Söluaðilar munu fá hvert blað afhent á 33 krónur stykkið og leggja sjálfir á þann kostnað sem fellur til vegna flutningsins.

„Við fáum aðeins greitt fyrir pappírinn, annar kostnaður við útgáfuna er án endurgjalds eftir sem áður. Í þeim tilfellum þar sem blaðið fer inn í fyrirliggjandi dreifingarkerfi söluaðila fá lesendur það á einfalda kostnaðarverðinu."

Þegar hefur verið gengið frá samningum við N1 um að bjóða viðskiptavinum sínum Fréttablaðið. Fleiri sölustaðir munu bætast í hópinn á næstu vikum og verða kynntir jafnóðum í blaðinu. Þeim sem hafa áhuga á að taka blaðið til dreifingar á landsbyggðinni er bent á að setja sig í samband við Pósthúsið í síma 585 8300.

Áfram verður hægt að fá Fréttablaðið í fullri áskrift utan dreifingarsvæðis. Kostar það 2.890 krónur á mánuði eða frítt í rafrænni áskrift í tölvupósti, auk þess sem blaðið er aðgengilegt á Vísi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×