Hiddink óttast Shearer-áhrifin á móti Newcastle Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. apríl 2009 15:30 Guus Hiddink, stjóri Chelsea. Mynd/AFP
Guus Hiddink, stjóri Chelsea, er vel meðvitaður um það gæti verið erfitt að eiga við Newcastle í fyrsta leiknum undir stjórn Alan Shearer enda ætli leikmenn liðsins að sanna sig fyrir nýjum stjóra. Liðin mætast á St James Park á morgun. „Það vita allir hver staðan er. Það má búast við sterkum viðbrögðum hjá Newcastle, bæði hjá leikmönnum og áhorfendum. Við vitum að þetta verður erfiður leikur á móti baráttuglöðu liði," sagði Hiddink sem hefur séð tímana tvenna í boltanum. Newcastle hefur spilað skelfilega að undanförnu. Liðið hefur aðeins náð í tvö stig út úr síðustu fimm leikjum sínum og ennfremur aðeins unnið einn leik frá jólum. „Það mun gefa leikmönnum Newcastle auka orku að fá nýja rödd inn í búningsklefann og við þurfum bara að mæta því inn á vellinum," sagði Hiddink en fyrri leik liðanna í vetur lauk með markalausu jafntefli á Brúnni. Hiddink ætlar að spara Didier Drogba í leiknum á morgun þar sem að hann vill hafa hann heilan fyrir Meistaradeildarleikinn á móti Liverpool í næstu viku. Hiddink sagði að Drogba væri meiddur á ökkla en eins er hann eflaust ennþá að jafna sig andlega eftir harmleikinn þegar 19 manns dóu á meðan leik Fílbeinsstrandarinnar og Malaví stóð í undankeppni HM. Drogba skoraði tvö mörk í 5-0 sigri en troðningurinn á vellinum breytti góðum sigri í mikinn harmleik. Hiddink er ekkert búinn að gefa meistaratitilinn frá sér. „Á meðan að við eigum möguleika þá berjumst við áfram. Við stefnum ennþá á það að verða meistarar," sagði Hiddink.
Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Sjá meira