Innlent

Fimm fluttir á slysadeild eftir árekstur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fimm voru fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur tveggja fólksbíla á gatnamótum Bústaðarvegar og Háaleitisbrautar um klukkan korter í átta í kvöld.

Áreksturinn varð með þeim hætti að bifreið með ökumanni og þremur farþegum var ekið inn í hliðina á öðrum bíl, en ökumaður þess síðarnefnda var einn. Líklegt er að áreksturinn hafi orðið vegna þess að annar bíllinn hafi farið yfir á rauðu ljósi en ekki liggur fyrir hvor bíllinn það er.

Samkvæmt upplýsingum frá sjúkraflutningamanni er fólkið sem var flutt á slysadeild ekki alvarlega slasað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×