Enski boltinn

Gerrard: Stigin skipta öllu máli

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gerrard fagnar hér þrennunni í dag.
Gerrard fagnar hér þrennunni í dag. Nordic Photos/Getty Images

Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, sagði að stigin þrjú í dag hefðu skipt meira máli en mörkin hans þrjú.

„Þrenna skiptir auðvitað máli en stigin eru miklu mikilvægari. Við hefðum sætt okkur við 1-0 sigur en það var ekki verra að vinna stórt. Villa er frábært lið sem hefur lent í smá lægð og því urðum við að passa okkur á því að þeir kæmust aldrei í gang. Við skoruðum snemma og byggðum ofan á það," sagði Gerrard.

„Þegar við skoruðum annað markið fórum við að hugsa um markamuninn í deildinni. Menn mega samt ekki missa sig í slíku. United hefur alla burði til þess að vinna alla þá leiki sem það á eftir en við verðum að halda einbeitingu og vinna alla leiki. Ef þeir gera mistök verðum við að nýta okkur það. Svo má heldur ekki gleyma Chelsea," sagði fyrirliðinn sem er sjóðheitur þessa dagana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×