Enski boltinn

Rooney stefnir á að brjóta 20 marka múrinn

Ómar Þorgeirsson skrifar
Wayne Rooney.
Wayne Rooney. Nordic photos/Getty images

Framherjinn Wayne Rooney hjá Englandsmeisturum Manchester United er sannfærður um að félagið geti plummað sig vel á næstu leiktíð án marka Portúgalans Cristiano Ronaldo.

„Við eigum mikið af frábærum leikmönnum og ef við vinnum saman sem lið þá er ég sannfærður um að við munum ná árangri," segir Rooney í viðtali á opinberri heimasíðu United.

Rooney ætlar sjálfur að leggja sitt af mörkum og setur stefnuna á að gera enn betur en hann gerði á síðustu leiktíð þegar hann skoraði samtals 20 mörk í öllum keppnum.

„Ég set alltaf stefnuna á að gera betur en á leiktíðinni þar á undan og skora meira. Það verður aftur mitt markmið á komandi leiktíð. Ef ég næ því, þá verð ég ánægður," segir Rooney.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×