Stöð 2 Sport: Leikdögum fjölgar í Meistaradeildinni 14. ágúst 2009 03:15 Barcelona bar sigurorð af Manchester United í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í Róm í maí síðastliðnum. Næsti úrslitaleikur fer fram laugardaginn 22. maí 2010 í Madríd. „
Þetta er auðvitað mikið fagnaðarefni fyrir knattspyrnuáhugamenn hér landi, en ekki síður viðurkenning fyrir fyrirtækið. Það hefur komið skýrt fram hjá söluaðilum þessa efnis að þeir telja að við höfum verið að þjóna markaðnum mjög vel og séum besti samstarfsaðilinn á markaðnum. Þeir líta á það sem sína hagsmuni að við komumst í gegnum þetta," segir Ari Edwald, forstjóri 365 miðla. Gengið hefur verið frá samningum þess efnis að Stöð 2 Sport sýni frá Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu næstu þrjú árin, eða til loka tímabilsins 2011 til 2012. ýmsar breytingar á fyrirkomulagi keppninnar verða kynntar á næsta tímabili. Þá hefur einnig verið gengið frá samningum um sýningarréttinn frá leikjum í ensku úrvalsdeildinni á Stöð 2 Sport 2 til næstu fjögurra ára. Það þýðir að enska úrvalsdeildin verður á Stöð 2 Sport 2 að minnsta kosti út tímabilið 2012 til 2013. Ari segist ánægður með þessa samninga. „Sá hljómgrunnur sem við fengum hjá ensku úrvalsdeildinni varðandi það að geta endursamið og fengið verðið lækkað í erlendri mynt var gríðarlega mikilvægur. Auðvitað er þetta dýrt efni áfram, enda gríðarlega gott og vinsælt efni," segir Ari. Að sögn Ara hafa skipuleggjendur og söluaðilar Meistaradeildarinnar haft mikið nef fyrir því að byggja upp spennandi viðburðasjónvarp og meðal annars styrkt UEFA-keppnina mjög, en þar keppa þau lið sem rétt misstu af sæti í Meistaradeildinni. Breytingar á sýningum á Meistaradeildinni fela meðal annars í sér að fleiri leikir úr úrslitaumferð í forkeppninni verða sýndir beint, enda mörg sterk lið sem þar mætast. Þá fara sextán liða úrslit keppninnar fram á fjórum vikum í stað tveggja áður og verða leikdagar átta í stað fjögurra. Þessar breytingar þýða að leikdögum fjölgar úr 26 í 34 að meðtöldu umspili Meistaradeildarinnar. Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar, sem fram fer í Madríd, höfuðborg Spánar, verður leikinn á laugardegi í stað miðvikudags eins og verið hefur. „Allt er þetta miðað að því að bæta keppnina og gera hana aðgengilegri fyrir sjónvarpsáhorfendur," segir Ari. Spurður um verðskrá Stöðvar 2 Sport segir Ari að áskriftargjald hafi ekki hækkað í haust. Hann gerir ekki ráð fyrir að verðið hækki út tímabilið, í það minnsta ekki hjá núverandi áskrifendum.
Mest lesið Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Artemis II er á heimleið Erlent Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Erlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Sjá meira