Erlent

Suu Kyi dæmd í áframhaldandi stofufangelsi

Búrmíski stjórnarandstöðuleiðtoginn Aung San Suu kyi var í morgun dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir að gerast brotleg við skilmála fyrri dóms. Herforingjastjórnin í landinu mildaði dóminn strax niður í eitt og hálft ár í stofufangelsi.

Suu kyi var gerð ábyrg fyrir því að Bandaríkjamanni nokkrum tókst að synda yfir stöðuvatn og banka upp á hjá henni í maí síðastliðnum. Suu kyi hlepti aðframkomnum manninum inn í hús sitt og fyrir það var hún ákærð.

Flestir höfðu búist við sakfellingu því með dómnum tekst stjórnvöldum að koma í veg fyrir að Suu kyi, sem verið hefur í stofufangelsi í fjórtán ár, geti tekið þátt í kosningum í landinu sem boðaðar hafa verið á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×