Farin að geta yfirgefið húsið án orðabókar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. mars 2009 09:00 Þórunn Helga Jónsdóttir í búningi Santos í Brasilíu. Mynd: Pedro Ernesto Guerra Azevedo
Knattspyrnukonan Þórunn Helga Jónsdóttir er nýu búin að vera út í Brasilíu í tvo mánuði og spilar í nótt fyrsta mótsleik sinn á þessu ári með brasilíska liðinu Santos. Þórunn Helga fór aftur til Brasilíu í janúar eftir að hafa orðið brasilískur bikarmeistari með liðinu fyrir jól. „Ég fór aftur út í annarri viku janúar eftir að hafa verið á Íslandi yfir hátíðarnar. Það eru því komnir um tveir mánuðir," segir Þórunn Helga sem gekk að hlutunum vísum í þetta skiptið eftir ævintýrið í lok síðasta árs. „Það var mun auðveldara að koma út í annað skiptið þar sem að ég vissi við hverju ég mátti búast, bæði varðandi fótboltann og lifnaðarhætti. Portúgalskan er líka orðin töluvert betri og ég er farin að geta yfirgefið húsið án orðabókar," segir Þórunn.Hásumar og mikill hitiÞórunn Helga kann mjög vel við sig út í Brasilíu þrátt fyrir hitann og hún er sannfærð um að ná að bæta sig mikið út í Brasilíu.„Ég er mjög sátt við að hafa komið aftur út. Hérna get ég einbeitt mér 100% að því að spila fótbolta og bæta mig. Við æfum tvisvar á dag alla virka daga og höfum verið að spila æfingaleiki um helgar. Svo erum við með það stóran hóp að við náum að skipta í þrjú 11 manna lið á æfingum," segir Þórunn og bætir við.„Hér er reyndar hásumar, svo að hitinn er töluvert meiri en maður á að venjast og enn meiri en þegar ég var hér fyrir áramót."Ætlar sér að spila með KR í sumarÞórunn ætlar sér samt að koma heim og spila með KR í sumar. „Ég stefni að því að vera hér fram í miðjan apríl svo að ég á ekki mikinn tíma eftir. Ég ætla bara að einbeita mér að því að æfa og spila eins vel og ég get hérna fram að því og halda áfram að njóta dvalarinnar og fótboltans," segir Þórunn og útskýrir aðeins betur.„Ég er bundin af því að koma heim í apríl, því að ég fór út með svo skömmum fyrirvara að ég náði ekki að sækja um vegabréfsáritun. Ég er líka búin að vera í sambandi við Gareth þjálfara KR allan tímann sem ég hef verið hérna og veit ekki betur en að hann geri ráð fyrir mér í KR liðinu í sumar.Þetta kemur allt í ljós. Aðalmálið hjá mér er að æfa og spila með Santos meðan tækifærið gefst," segir Þórunn Helga.Santos er sigurstranglegasta liðiðFramundan er keppni í sem er fylkismót og þar sem bara lið frá Sao Paolo fylki sem spila. Mótið er samt á vegum knattspyrnusambands Brasilíu en ekki héraðssambands Sao Paolo.„Mér skilst að liðið sé talið sigurstranglegast í þessari keppni. Hópurinn er mjög breiður og sterkur og mjög stór hluti liðsins á að baki landsleiki fyrir Brasilíu, annað hvort í a-landsliðinu eða yngri landsliðum. Reyndar missum við tvær sterkar til Bandaríkjanna fljótlega, Fran og Ériku," segir Þórunn Helga.Meðal liðsmanna Santos eru fjórar landsliðskonur Brasilíu sem unnu meðal annars silfurverðlaun á Ólympíuleikunum í Peking. Þórunn býst við að Santos-liðið eigi jafnvel sex leikmenn í landsliðinu sem mætir Svíum í vináttulandsleik í næsta mánuði.Everybody to you, everybody to youÞórunn hefur gaman af lífinu í Brasilíu og átti skemmtilega sögu af stelpunum í liðinu.„Þó að stelpurnar tali litla sem enga ensku hafa þær mjög gaman að amerískri og breskri tónlist. Þær eru hins vegar ófeimnar við að syngja með þó að þær skilji ekkert og oftar en ekki nota þær frumsamin orð.Ein taldi sig þó vera með afmælissönginn alveg á hreinu: „Everybody to you, everybody to you, everboooody to you". Útaf fyrir sig ekkert svo galinn texti," segir Þórunn Helga að lokum í léttum tón.
Fótbolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Enski boltinn Fleiri fréttir FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Bjarni Jó hættur Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ Sjá meira