Enski boltinn

Beckham vill sjá United og Barcelona í úrslitum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Beckham virðist ekki ætla að fara til Bandaríkjanna í sumar.
Beckham virðist ekki ætla að fara til Bandaríkjanna í sumar. Nordic Photos/Getty Images

David Beckham hefur fulla trú á því að fyrrum félagar hans í Man. Utd geti varið Meistaradeildar- og Englandsmeistaratitilinn.

„Ég myndi gjarna vilja sjá United og Barcelona í úrslitum í ár. Mínir fyrrum félagar myndu vinna þann leik því þeir eru einfaldlega með besta liðið í dag," sagði Beckham sem var í liði United sem vann Meistaradeildina árið 1999.

„Ég sakna þess mikið að spila í Meistaradeildinni. Það er minn draumur að taka þátt í henni á næstu leiktíð," sagði Beckham sem þarf þá að fá sig lausan frá LA Galaxy en þangað á hann að snúa aftur í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×