Innlent

Suðurnesjamenn gagnrýna Svandísi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Stærstu áformum í atvinnuuppbyggingu er teflt í tvísýnu með ákvörðun umhverfisráðherra, segir í ályktuninni. Mynd/ Valgarður.
Stærstu áformum í atvinnuuppbyggingu er teflt í tvísýnu með ákvörðun umhverfisráðherra, segir í ályktuninni. Mynd/ Valgarður.
Ríkisstjórnin verður að taka af skarið um að verkefni, sem fengið hafa eðlilegan undirbúning og hafa fylgt í öllum atriðum eðlilegum stjórnsýsluleiðum, verði ekki tafin frekar, segir í ályktun borgarafundar sem haldinn var á Suðurnesjum í kvöld.

Í ályktuninni segir að stærstu áformin í atvinnuuppbyggingu, s.s. álver, kísilver og gagnaver, krefjist orku sem þurfi að flytja á milli staða. Þeim sé teflt í tvísýnu með ákvörðun umhverfisráðherra að tefja enn frekar vinnu við raforkulagnir um Suðurnes. Óljóst sé hvort tafir á uppbyggingu vegna ákvörðunar ráðherrans þýði mánuði eða ár. Þá hafi ríkisstjórnin ekki svarað því hvort og með hvaða hætti hún hyggist styðja hafnargerð í Helguvík sem langt sé komin. Þessi mál verði ríkisstjórnin strax að leysa.

„Öllum töfum í atvinnuuppbyggingu er stefnt gegn tekjulágu fólki og atvinnulausum sem beðið hefur árum saman eftir nýjum atvinnutækifærum. Yfir 1600 manns eru nú atvinnulausir á Suðurnesjum.

Borgarafundurinn minnir á að brotthvarf bandaríska varnarliðsins frá Suðurnesjum, fyrir aðeins þremur árum, hratt af stað stærstu hópuppsögnum í sögu þjóðarinnar á undan núverandi kreppu. Þá töpuðust 900 störf.

Þau fjölbreyttu atvinnutækifæri sem unnin hafa verið á undanförnum árum í samstarfi sveitarfélaga, launþegahreyfingar og atvinnufyrirtækja á svæðinu, eru nú tilbúin til framkvæmda og geta skapað þúsundum manna atvinnu frá áramótum. Napur veruleiki atvinnuleysis og lágra launa gæti því breyst fyrir mjög marga strax um næstu áramót með fyrirhuguðum stórverkefnum á sviði álvinnslu í Helguvík. Laun í álveri eru umtalsvert hærri en þau meðallaun sem íbúar búa nú við.

Í framhaldi af því bíða fjölmörg önnur vel launuð og áhugaverð störf m.a. tengd rafrænu gagnaveri, heilsuuppbyggingu, tónlistarsköpun, kolefnisnýtingu, flugþjónustu og áframhaldandi styrkingu menntastoða hjá Keili.

Ef ráðherrar ríkisstjórnarinnar vinna með Suðurnesjamönnum, geta þúsundir manna fengið að nýju atvinnu og aðrir notið betur launaðra starfa strax um næstu áramót," segir í ályktun borgarafundarins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×