Munaði litlu að Óli Jó fengi leik gegn Maradona Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. október 2009 16:00 Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari. Mynd/Stefán
Litlu mátti muna að Ísland hefði leikið æfingaleik gegn Argentínu ytra í síðasta mánuði en hætt var við það á síðustu stundu. Landsliðsþjálfari Argentínu er sem kunnugt er hinn goðsagnakenndi Diego Maradona. Þetta sagði Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari þegar Vísir hitti á hann á æfingu landsliðsins í Kórnum í dag. „Við fengum fyrirspurn frá knattspyrnusambandi Argentínu um hvort við hefðum áhuga á að koma og spila við þá," sagði Ólafur. „Við sögðum já við því eins og við gerum alltaf þegar lið ákveða að bjóða okkur til sín. Í kjölfarið tóku við bréfaskriftir á milli sambandsins okkar og þeirra en þeir ákváðu svo að hætta við." „Til stóð að þetta yrði æfingaleikur sem færi ekki fram á alþjóðlegum leikdegi og að liðið þeirra yrði aðeins skipað leikmönnum úr argentínsku deildinni. Þeim hefur gengið nokkuð illa og ætluðu að fá þarna einn leik til að byggja upp sjálfstraustið. Þá datt þeim í hug að tala við okkur," sagði Ólafur í léttum dúr. Í gær var það svo tilkynnt að Ísland muni leika æfingaleik við Íran þann 10. nóvember í höfuðborginni Teheran. Sá leikur er ekki á alþjóðlegum leikdegi. „Mér líst frábærlega á það. Við fáum oft á þessum árstíma boð frá hinum og þessum löndum víðs vegar um heiminn um að koma og spila og var ákveðið að taka boði Írana. Þessi ferð verður KSÍ að kostnaðarlausu og óhætt að segja að verði gaman að koma til Íran." Ólafur segir að hann muni reyna að fá leikmenn sem spila með norskum og sænskum liðum enda ljúki tímabilinu í þeim löndum fyrir landsleikinn gegn Íran. Að auki verður liðið skipað leikmönnum sem spila hér á landi.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Enski boltinn Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Fótbolti Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Fótbolti Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Fleiri fréttir Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Ungu strákarnir okkar slást við Grikki um sæti á EM Í tveggja leikja bann fyrir að kippa í hárið Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Sjá meira