Kókaínið í Madrid átti að koma hingað Jóhanna S. Sigþórsdóttir skrifar 30. desember 2009 00:01 Barajas-flugvöllur Íslendingarnir tveir, maður og kona sem bæði eru um tvítugt, voru handteknir með fíkniefni á Barajas-flugvelli í Madrid 17. desember og sitja nú í haldi ytra.
Rökstuddur grunur leikur á að í kringum fimmtán kílóum af kókaíni, sem tveir Íslendingar voru teknir með í Madrid um miðjan mánuðinn, hafi átt að smygla hingað til lands, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Maður og kona, rétt um tvítugt, sitja í haldi ytra vegna málsins. Þeim hefur verið útvegaður lögfræðingur, samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu. Parið var handtekið á Barajas-flugvelli í Madrid 17. desember síðastliðinn. Það var þá að koma frá Perú. Fullvíst er talið að maðurinn og konan séu burðardýr, sem hafi verið ætlað að koma efnunum hingað til lands. Kókaínið höfðu þau falið í ferðatöskum. Tollgæslumenn á flugvellinum stöðvuðu þau við komuna til landsins. Þau voru í kjölfarið úrskurðuð í gæsluvarðhald og eru nú í fangelsi um þrjátíu kílómetra utan við borgina. Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir rannsóknina alfarið í höndum lögreglunnar á Spáni. Hún vilji ekki að upplýsingar um málið séu veittar á þessu stigi þess. Hann kveðst því einungis geta staðfest að íslenska fíkniefnalögreglan hafi vitneskju um það. „Við höfum verið í samvinnu við spænsku lögregluna vegna málsins,“ segir Karl Steinar. „En allt annað er algjörlega á þeirra forræði, þar með talin upplýsingagjöf og eftir því förum við.“ Pétur Ásgeirsson, sviðsstjóri rekstrar- og þjónustusviðs hjá utanríkisráðuneytinu, segir ráðuneytið hafa verið í sambandi við unga parið í gegnum ræðismann Íslands í Madrid. Hann kveður ráðuneytið ekki gefa upplýsingar um einkamál skjólstæðinga, nema þeir samþykki það eða beinlínis fari fram á það. „Í þessu tilviki er ekki ætlast til þess að við séum að upplýsa um málið,“ segir Pétur. Hann segir ræðismanninn aðstoða fólkið eftir mætti. „Við munum fylgjast með framvindu málsins eins og við gerum yfirleitt þegar svona nokkuð kemur upp,“ segir Pétur. „Almennt talað er okkar aðkoma sú, að þegar fólk er handtekið fær það leyfi til þess að hafa samband við íslenskan ræðismann eða sendiráð á viðkomandi stað. Síðan gengur málið sinn gang í réttarkerfi viðkomandi ríkis. Hlutverk ráðuneytis er einkum félagslegur stuðningur við fólk.“
Mest lesið Eldgos hafið Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Innlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Fleiri fréttir Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Eldgos hafið Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Sjá meira