Gunnleifur: Fyrri hálfleikurinn vonbrigði Smári Jökull Jónsson skrifar 12. ágúst 2009 22:10 Gunnleifur Gunnleifsson í landsleik gegn Hollandi. Nordic photos/AFP
Gunnleifur Gunnleifsson stóð í marki íslenska landsliðsins í kvöld og átti prýðisgóðan leik, en hann bjargaði í nokkur skipti með góðum markvörslum. Hann var þó ekki nógu ánægður með úrslitin. "Við ætluðum að reyna að vinna leikinn og halda hreinu. Fyrri hálfleikurinn var hálfgerð vonbrigði og við vorum hálf andlausir og áhugalausir. Svo fannst mér allt annað að sjá til okkar í síðari hálfleik þar sem við vorum betri aðilinn og sköpuðum okkur færi," sagði Gunnleifur í samtali við Vísi eftir leik. "Við erum búnir að fá á okkur mark snemma í síðustu leikjum. Við lögðum upp með að halda hreinu út fyrri hálfleikinn, koma síðan framar á völlinn og vinna leikinn þannig. Síðan var skorað eftir rúman hálftíma og alltaf svekkjandi að fá á sig mark. Hann hitti boltann vel og setti hann alveg út í hornið, en samt alltaf svekkjandi þegar er skorað hjá manni," bætti Gunnleifur við. Eins og áður segir átti Gunnleifur góðan leik í kvöld og virðist vera í góðu formi. "Ég var í góðum gír og fékk auðvitað hjálp frá félögunum við að verja markið. Þetta eru allt topp fótboltamenn sem eru með mér í þessu og það kemur maður í manns stað og því ekkert vandamál þó einhverja hafi vantað í vörnina. Brynjar Björn var mjög flottur í leiknum, bæði í fyrri hálfleik og svo var þetta ekkert mál fyrir hann í vörninni í seinni hálfleik. Hann kann þetta og stjórnaði þessu alveg," sagði Gunnleifur að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fleiri fréttir Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Bjarni Jó hættur Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Sjá meira