Enski boltinn

Kieron Dyer að ná heilsu

Nordic Photos / Getty Images

Meiðslakálfurinn Kieron Dyer hjá West Ham United segist nú vera að ná fullri heilsu eftir enn eina baráttuna við langvarandi meiðsli.

Þessi þrítugi fyrrum landsliðsmaður var keyptur til West Ham frá Newcastle fyrir sex milljónir punda árið 2007, en hann hefur aðeins spilað sex leiki fyrir félagið á þeim tíma.

Dyer sneri aftur til leiks með varaliði West Ham þann 21. mars og spilaði klukkutíma í sérstökum varaliðsleik gegn Chelsea sem settur var á til að leyfa kappanum að reyna sig.

"Chelse-leikurinn var sérstaklega ánægjulegur þar sem ég spilaði klukkutíma og fann ekkert til eftir leikinn. Venjulega þurfti ég að fara í ísbað eftir leiki til að slá á bólgurnar í leggjunum, en nú er ég frískur," sagði Dyer.

Hann sagðist hafa fundið fyrir þakklæti þegar stuðningsmenn West Ham klöppuðu fyrir honum þegar hann spilaði æfingaleikinn og vonast til að fá að spila eitthvað með aðalliði West Ham áður en leiktíðinni lýkur í vor.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×