Suðurnesjamenn gagnrýna Svandísi Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. október 2009 20:12 Stærstu áformum í atvinnuuppbyggingu er teflt í tvísýnu með ákvörðun umhverfisráðherra, segir í ályktuninni. Mynd/ Valgarður.
Ríkisstjórnin verður að taka af skarið um að verkefni, sem fengið hafa eðlilegan undirbúning og hafa fylgt í öllum atriðum eðlilegum stjórnsýsluleiðum, verði ekki tafin frekar, segir í ályktun borgarafundar sem haldinn var á Suðurnesjum í kvöld. Í ályktuninni segir að stærstu áformin í atvinnuuppbyggingu, s.s. álver, kísilver og gagnaver, krefjist orku sem þurfi að flytja á milli staða. Þeim sé teflt í tvísýnu með ákvörðun umhverfisráðherra að tefja enn frekar vinnu við raforkulagnir um Suðurnes. Óljóst sé hvort tafir á uppbyggingu vegna ákvörðunar ráðherrans þýði mánuði eða ár. Þá hafi ríkisstjórnin ekki svarað því hvort og með hvaða hætti hún hyggist styðja hafnargerð í Helguvík sem langt sé komin. Þessi mál verði ríkisstjórnin strax að leysa. „Öllum töfum í atvinnuuppbyggingu er stefnt gegn tekjulágu fólki og atvinnulausum sem beðið hefur árum saman eftir nýjum atvinnutækifærum. Yfir 1600 manns eru nú atvinnulausir á Suðurnesjum. Borgarafundurinn minnir á að brotthvarf bandaríska varnarliðsins frá Suðurnesjum, fyrir aðeins þremur árum, hratt af stað stærstu hópuppsögnum í sögu þjóðarinnar á undan núverandi kreppu. Þá töpuðust 900 störf. Þau fjölbreyttu atvinnutækifæri sem unnin hafa verið á undanförnum árum í samstarfi sveitarfélaga, launþegahreyfingar og atvinnufyrirtækja á svæðinu, eru nú tilbúin til framkvæmda og geta skapað þúsundum manna atvinnu frá áramótum. Napur veruleiki atvinnuleysis og lágra launa gæti því breyst fyrir mjög marga strax um næstu áramót með fyrirhuguðum stórverkefnum á sviði álvinnslu í Helguvík. Laun í álveri eru umtalsvert hærri en þau meðallaun sem íbúar búa nú við. Í framhaldi af því bíða fjölmörg önnur vel launuð og áhugaverð störf m.a. tengd rafrænu gagnaveri, heilsuuppbyggingu, tónlistarsköpun, kolefnisnýtingu, flugþjónustu og áframhaldandi styrkingu menntastoða hjá Keili. Ef ráðherrar ríkisstjórnarinnar vinna með Suðurnesjamönnum, geta þúsundir manna fengið að nýju atvinnu og aðrir notið betur launaðra starfa strax um næstu áramót," segir í ályktun borgarafundarins.
Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira