Gátu sótt tekjur til lífskjaratryggingar 27. ágúst 2009 05:30 Beðið eftir brauðinu Sókn í fjárhagsaðstoð hjá sveitarfélögum hefur tvöfaldast, samkvæmt því sem bæjarstjóri Hafnarfjarðar hefur sagt. Minnihlutinn vildi nýta heimild til að hækka útsvar um 0,25 prósent um áramótin, en meirihlutinn féllst ekki á það. fréttablaðið/GVA
Um síðustu áramót fengu sveitarfélög heimild til að hækka útsvar um 0,25 prósent. Hefði Reykjavíkurborg nýtt sér þetta hefðu tekjur borgarinnar aukist um 670 milljónir. Þetta eru 88 prósent þeirra 760 milljóna, sem nefndar hafa verið sem forsenda þess að borgin geti veitt svokallaða lífskjaratryggingu, 186.000 krónur í lágmarksframfærslu til þeirra sem engar tekjur hafa. Eins og áður hefur verið greint frá í blaðinu hefur nefnd um sálfélagsleg viðbrögð við kreppunni mælt með að fólki verði tryggð þessi lágmarksupphæð, í stað þeirra 115.567 sem það getur fengið nú. Formaður velferðarráðs borgarinnar, Jórunn Frímannsdóttir, hefur metið það svo að til að geta staðið undir þessu þá þyrfti að hækka útsvar um 1,5 prósent. Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi VG, bendir á að nær væri að miða við 0,28 prósenta hækkun; hún myndi duga. Fjármálaskrifstofa Reykjavíkur staðfestir þetta við blaðið. „Við sáum fram á aukna þörf fyrir fjárhagsaðstoð og að borgin þyrfti því á meiri peningum að halda. Flest sveitarfélögin nýttu sér þessa heimild en meirihlutinn í borginni ákvað, eins og Seltjarnarnes og Garðabær, að hækka ekki útsvarið,“ segir Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi VG. Hann hafi mælst til þess í velferðarráði og borgarstjórn að tekjulægsta fólkið fengi að lágmarki sömu hækkun og samið var um í almennum kjarasamningum, 20.300 krónur á mánuði. Hámarksfjárhagsaðstoð til tekjulítilla hækkaði hins vegar um 16.238 krónur, en útsvar var óbreytt: 13,03 prósent. Bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Lúðvík Geirsson, hefur sagt 186.000 krónur vera „bara það sem fólk þarf til að lifa af“ og heilbrigðisráðherra hefur lýst yfir ánægju með skýrslu fyrrgreindrar nefndar. Í henni kom meðal annars fram að Finnar telja sig hafa gert mistök í efnahagskreppu þeirra á tíunda áratugnum, með því að draga úr framlögum til velferðarmála. klemens@frettabladid.is Þorleifur Gunnlaugsson
Mest lesið Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Erlent Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Erlent Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Innlent Sautján ára drengur lést í snjóflóði Erlent Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fleiri fréttir Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Sjá meira