Enski boltinn

Ooijer aftur á leið til PSV

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Andre Ooijer í leik með Blackburn.
Andre Ooijer í leik með Blackburn. Nordic Photos / Getty Images

Hollenski varnarmaðurinn Andre Ooijer hefur staðfest að hann muni ganga aftur til liðs við PSV Eindhoven í heimalandi sínu nú í sumar.

Ooijer kom til Blackburn frá PSV árið 2006 og hyggst nú ljúka ferlinum hjá sínu gamla félagi.

„Það verður gengið endandlega frá þessu í maí," sagði Ooijer í samtali við sjónvarpsstöð PSV. „Ég hef átt þrjú góð ár erlendis en kem nú sáttur aftur heim til Hollands."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×