Innlent

Ekki dagur stórra yfirlýsinga

Dagur B. Eggertsson segir best að vera ekki með stórar yfirlýsingar í dag.
Dagur B. Eggertsson segir best að vera ekki með stórar yfirlýsingar í dag.
„Ég hef ekki verið á formannsbuxum. Ég hef hins vegar verið í framboði til varaformanns og fengið góð viðbrögð um land allt við því. Síðan hef ég verið að stefna á borgarstjórnarkosningarnar," segir Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Dagur segir ekki tímabært að vera með stórar yfirlýsingar í dag. Tíðindi dagsins séu þau að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sé að stíga til hliðar og skarð hennar verði vandfyllt. Hann segir að í sínum huga sé að mörgu leyti rökrétt að forsætisráðherraefnið og núverandi forsætisráðherra taki einnig við formennsku í Samfylkingunni.

„Þetta er ný staða og ég held að samfylkingarfólk og forystan eigi að sameinast um að finna lausn sem sameinar flokkinn og síðan þjóðina á bak við okkar leið út úr kreppunni. Það er auðvitað verk flokksins fyrir kosningarnar í vor," segir Dagur. Hann segir því að samfylkingarmenn eigi að gefa sér tíma til að meta stöðuna. „Ég held að það sé ekki óeðlilegt á sama tíma og við við sendum Ingibjörgu Sólrúnu hlýja og góða strauma," segir Dagur.






Tengdar fréttir

Ingibjörg Sólrún hætt í pólitík

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar og alþingismaður, er hætt í stjórnmálum. Ingibjörg tilkynnti þetta á fundi með fjölmiðlamönnum klukkan fimm í dag. Ingibjörg er formaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi utanríkisráðherra. Hún sagði að frá því að hún og Jóhanna Sigurðardóttir héldu blaðamannafund fyrir viku síðan hefið hún komist að því að hún hefði ekki heilsu í að starfa áfram í stjórnmálum. Hún hefur tilkynnt Jóhönnu Sigurðardóttur, Össur Skarphéðinssyni og helstu trúnaðarmönnum Samfylkingarinnar um þetta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×