Fótbolti

Hólmfríður tryggði Kristianstad mikilvægan sigur

Ómar Þorgeirsson skrifar
Hólmfríður Magnúsdóttir í landsleik gegn Frakklandi.
Hólmfríður Magnúsdóttir í landsleik gegn Frakklandi. Mynd/Stefán

Elísabet Gunnarsdóttir stýrði Kristianstad til 3-2 sigurs gegn Sunnanå í sænska kvennaboltanum í dag en Hólmfríður Magnúsdóttir skoraði sigurmarkið með dramatískum hætti.

Hólmfríður kom inn á sem varamaður þegar um tuttugu mínútur lifðu leiks og skoraði sigurmarkið í uppbótartíma.

Margrét Lára Viðarsdóttir, Guðný Björk Óðinsdóttir og Erla Stena Arnardóttir léku allan leikinn fyrir Kristianstad sem styrkti stöðu sína í harðri fallbaráttu í efstu deild í Svíþjóð.

Kristianstad er nú fjórum stigum frá fallsæti þegar þrjár umferðir eru eftir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×