Fótbolti

Villa skaut Spánverjum í undanúrslitin

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
David Villa fagnar marki sínu í dag.
David Villa fagnar marki sínu í dag. Nordic Photos/AFP

Spánverjar eru komnir í undanúrslit Álfukeppninnar eftir sigur á baráttuglöðum Írökum.

Spánverjum tókst aðeins að skora eitt mark í leiknum og það gerði David Villa með skalla í síðari hálfleik.

Hann fékk þá laglega sendingu í teiginn frá Capdevila. Írakar steingleymdu að dekka Villa sem skallaði boltann laglega í netið.

Villa komst með markinu í annað sæti yfir þá leikmenn sem hafa skorað flest mörk fyrir spænska landsliðið. Aðeins Raul hefur skorað fleiri mörk en Villa með landsliðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×