Aðild að ESB gæti orðið hröð 10. október 2009 01:00 Sótt um aðild Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra á fundi með Carl Bildt utanríkisráðherra Svía eftir að hafa afhent formlega umsókn um aðild að ESB.Fréttablaðið/AFP
Aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB) gæti gengið tiltölulega hratt fyrir sig. Þetta kemur fram í árvissri skýrslu ESB um stækkunarferli sambandsins sem kemur út í næstu viku. Fréttastofa Reuters og írska útvarpsstöðin RTÉ birtu gögn úr drögum að skýrslunni í gær. Bent er á að Ísland sé þegar hluti af innri markaði Evrópu og Schengen-svæðinu. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir drögin ekki hafa borist í ráðuneytið, en afstaðan komi þó ekki á óvart. „Ég hef kynnt málstað Íslands fyrir öllum ráðherrum Evrópusambandsins og átt mörg símtöl og fundi með sumum þeirra,“ segir hann og leggur áherslu á ekki sé farið fram á hraðferð í sambandið þótt landið vilji vera metið að verðleikum. „Við höfum verið í fimmtán ára samrunaþróun við Evrópusambandið. Frá því við gengum í EES og til Schengen-samstarfsins höfum við tekið upp það sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins metur sjálf sem sjötíu prósent af því regluverki sem þar er að finna. Af þeim sökum teljum við að þetta formlega ferli eigi að geta tekið skemmri tíma.“ Össur segist þó vilja leggja á það áherslu að ekkert liggi fyrir um hversu hratt aðildarsamningarnir gangi. „Þar eru erfiðir kaflar sem þarf að taka og ég hef sjálfur alltaf gert ráð fyrir að ýmsir þættir þar, svo sem varðandi sjávarútveg og landbúnað, kunni að taka langan tíma og vera erfiðir.“- óká
Mest lesið Eldgos hafið Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Innlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Fleiri fréttir Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Eldgos hafið Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Sjá meira