Heimir er bjartsýnn á að Dennis sé ekki með slitið krossband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. apríl 2009 14:30 Dennis Siim mun örugglega missa af upphafi Íslandsmótsins. Mynd/Vilhelm
Það kemur endanlega í ljóst í kvöld hvort FH-ingurinn Dennis Siim sé með slitið krossband eða ekki en Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, er bjartsýnn eftir læknisskoðun fyrr í dag. Dennis meiddist í undanúrslitaleik FH og Fylkis í Lengjubikarnum í gær. „Dennis fer í myndatöku klukkan hálf fimm í dag. Hann er búinn að fara í skoðun, fór í hana fyrir klukkutíma síðan, og þeir halda að þetta sé rifinn liðþófi og jafnvel að liðbandið sé eitthvað skaddað," sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH. „Ef að það er þá ætti hann að vera klár eftir landsleikjapásuna um miðjan júní," sagði Heimir en örlög Danans trausta ráðast þó ekki endanlega fyrr en búið er að mynda hnéð. „Það er ekkert öruggt því að þetta gæti verið krossbandið en það kemur í ljós í kvöld. Ef að það er þá er þetta búið hjá honum í sumar en við vonum það besta og vonandi verður hann klár eftir landsleikjahléið," segir Heimir. Heimir þurfti líka að horfa á eftir þremur öðrum leikmönnum sínum fara meidda af velli í gær en það voru þeir Freyr Bjarnason, Alex Söderlund og Tommy Nielsen. „Bæði Freyr og Tommy eru spurningamerki og geta verið frá í tvær til þrjár vikur," sagði Heimir en Tommy tognaði á ökkla en Freyr á læri. „Þetta er eitthvað minna hjá Alex og hann verður vonandi klár eftir eina viku eða tvær," segir Heimir en hann þarf að skipta um þrjá menn í varnarlínunni fyrir úrslitaleikinn í Lengjubikarnum á móti Blikum sem fram fer á föstudaginn kemur. „Nú þarf maður að taka gamla feldinn á þetta og sjá hvað er hægt að gera. Meiðsli fylgja fótboltanum og við verðum að vona það besta. Þetta eru allt leikmenn í góðri þjálfun og þeir ættu að vera fljótir að jafna sig," sagði Heimir að lokum. FH lenti 1-0 undir á móti Fylki og missti þrjá menn meidda af velli í fyrri hálfleik en kom til baka og tryggði sér 2-1 sigur og sæti í úrslitaleiknum. Heimir var sáttur með hvernig hans menn unnu úr mótlætinu. Hann segir það hjálpa liðinu að fá fleiri alvöru leiki fram að móti.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Á sársaukafullar minningar af HM Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu Á sársaukafullar minningar af HM Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka Sjá meira