Ernir farnir að verpa á Suðurlandi 24. ágúst 2009 03:00 Varpsvæði arnar hefur stækkað á undanförnum árum en einungis voru um 20 pör á landinu í kringum 1960.mynd/náttúrustofa vesturlands
Arnarungar sem komust á legg í sumar voru 36 og hafa þeir ekki verið fleiri í manna minnum. Íslenski hafarnarstofninn telur nú um 65 pör og urpu 45 þeirra í vor. Varp misfórst hjá 19, þar á meðal hjá parinu sem fylgst var með á vefmyndavél Arnarsetursins. „Þetta er búið að vera mjög gott ár, ekkert flóknara en það,“ segir Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands. Um ástæður þess að stofninn hafi stækkað segir hann að til dæmis sé minna um skaðsemi af mannavöldum. „Við vöktum arnarstofninn á hverjum ári og fylgjumst vel með varpi,“ segir Jón Gunnar sem segir að Náttúrufræðistofnun viti vel hvar sé verið að sækja á örninn og hafi gert ráðstafanir vegna þessa á undanförnum árum. Varpsvæði arna nær nú frá Faxaflóa og vestur og norður um í Húnaflóa. Áður urpu ernir um land allt og var stofninn þá tvisvar til þrisvar sinnum stærri en í dag. Fækkun hófst í kjölfar ofsókna og eitrunar á 19. öld og urðu pörin fæst um 20 í kringum 1960. Nú hafa arnarpör sést í Árnessýslu en þar er ekki viðvarandi varp, að sögn Jóns Gunnars. Náttúrufræðistofnun Íslands fylgist með arnarstofninum í samvinnu við Fuglaverndarfélag Íslands og Náttúrustofurnar í Stykkishólmi og Bolungarvík.- vsp
Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Sjá meira