Þóra: Viljum vinna Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. apríl 2009 10:30 Þóra B. Helgadóttir, markvörður íslenska landsliðsins. Mynd/Hörður
Þóra B. Helgadóttir, markvörður íslenska landsliðsins, segir að hún og aðrir í kringum landsliðið vilji að sjálfsögðu vinna leikinn gegn Hollandi í dag þó svo að um vináttulandsleik sé að ræða. Ísland mætir Hollandi í Kórnum klukkan 16.00 í dag. „Það verður kannski ekki sama ofurkapp lagt á að vinna leikinn eins og um „alvöru" leik væri að ræða. En það vill þó enginn okkar tapa og er Sigurður Ragnar (landsliðsþjálfari) þar engin undantekning. Hann mun þó vafalaust nýta leikinn til að skoða leikmenn og prófa sig áfram. Markmiðið hlýtur þó að vera að vinna." Hún býst við erfiðum leik en hún þekkir lítillega til hollenska liðsins. „Ég þekki framherja liðsins en ég lék með henni í Malmö í Svíþjóð þegar ég var þar," sagði Þóra. Hún var einnig á mála hjá Anderlecht í Belgíu og lék þá við nokkur hollensk lið. „Þetta voru ágæt lið og hollenska deildin er sífellt að verða sterkari. Ég tel að landsliðin okkar ættu að vera svipuð að styrkleika. Þetta lið er ekkert slor en það erum við ekki heldur." „Þessi lið komu inn sem 11. og 12. liðið á EM og við þurfum að sýna að við getum unnið þær eins og aðra." „Holland var reyndar ekkert frábært í sínum riðli í undankeppninni og rétt skreið inn í undankeppnina þar sem liðið vann ekki nema þrjá af leikjunum sínum í riðlinum. En þær unnu svo Spánverja sannfærandi í umspilinu. Þær virðast vera nokkuð misjafnar, eiga góða og slæma daga á víxl - rétt eins og við vorum fyrir 4-5 árum síðan." Þóra leikur nú með Kolbotn í Noregi og er eina landsliðskonan sem er þar. Þó er mikill fjöldi í Svíþjóð og hefur því sænska deildin fengið talsvert meiri athygli en sú norska hér á landi. „Ég fór greinilega í vitlausa deild," sagði hún í léttum dúr. „En mér líður mjög vel hjá Kolbotn. Þegar ég kom fóru fjórar landsliðsstelpur frá liðinu sem mér fannst reyndar vera plús. Við erum með ungt og nýtt lið og það er alltaf gaman að taka þátt í uppbyggingu nýs liðs - svipað eins og við gerðum í Breiðabliki árið 2005. Okkur var spáð sæti um miðja deild en við ætlum okkur að vera í toppbaráttunni. Sem stendur erum við í öðru sæti á eftir Stabæk en það eru aðeins þrjár umferðir búnar. En mér líst afskaplega vel á þetta. Liðið er gott og þjálfarinn frábær." Hún segir að norska deildin sé svipuð að styrkleika og sú sænska. „Það er erfitt að fullyrða nokkuð um það en ég myndi telja að þær væru nokkuð svipaðar. Stabæk er rétt eins og Umeå - langsterkasta liðið enda keyptu þær eiginlega allt landlsliðið fyrir tímabilið. Það er þó ekki óyfirstíganlegt verkefni að vinna þær. En svo eru tvö lið sem eru langslökust sem maður hefur líka séð í sænsku deildinni."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Hull City - Manchester United | Rauðu djöflarnir í heimsókn hjá nýliðunum Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans „Kærkomið að fá eitt svona mark“ „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Eiður Smári þjálfar KA Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar nálgast annað sætið Sjá meira