Pólskur kranamaður á línunni í Eyjum í kvöld Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. maí 2009 14:41 Nordic Photos / Getty Images
2. umferð Pepsi-deildar karla hefst í kvöld með leik ÍBV og Breiðabliks. Athygli vekur að annar aðstoðarmaður Kristinn Jakobssonar dómara er hinn pólski Tomasz Jacek Napierajczyk. Tomasz er pólskur og kom hingað til lands til að vinna í byggingariðnaði. Hefur hann starfað sem kranamaður hér á landi. Hann hafði starfað sem dómari í heimalandi sínu og fyrir ári síðan kom hann sér í samband við Knattspyrnusamband Íslands í þeim tilgangi til að fá að starfa við dómgæslu hér á landi. „Við tókum honum auðvitað opnum örmum," sagði Gylfi Þór Orrason, varaformaður KSÍ og formaður dómaranefndar sambandsins. Tomasz hafði með sér plögg frá pólska knattspyrnusambandinu sem sýndu að hann hafði unnið sig upp í þriðja styrkleikaflokk dómara þar í landi. „Hann er sérhæfður aðstoðardómari og hafði starfað mikið sem slíkur í heimalandi sínu. Við settum hann strax á leiki og starfaði hann mikið fyrir KSÍ síðasta sumar. Var það einróma álit manna að þarna væri á ferð mjög frambærilegur dómari," sagði Gylfi. Tomasz var því fluttur upp í flokk C-dómara nú fyrir stuttu og starfar í kvöld í fyrsta sinn á leik í efstu deild. Kristinn Jakobsson verður aðaldómari leiksins. Hann talar mjög góða ensku og hafa því samskipti hans við aðra dómara ekki verið vandkvæðum háð. „Tomasz hefur lagt sig gríðarlega mikið fram á æfingum dómara í vetur og er greinilega afar metnaðargjarn. Við viljum með þessu sýna fram á að þeir sem nenna að leggja sig fram uppskera eftir því. Við erum stoltir af því að fá hann til starfa."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Þjálfari Patriots í leynilegu ástarsambandi með blaðamanni í mörg ár Sport „Ágætis próf fyrir okkur að fá svona rassskellingu“ Íslenski boltinn Stjörnurnar mættu með gufupotta til að hita takkaskóna Fótbolti Sló met Eiðs Smára Íslenski boltinn ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Handbolti Hávær öskur þjálfaranna heyrðust vel: „Þú sérð það sjálfur!“ Íslenski boltinn Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Enski boltinn Öll mörkin í Bestu: Hetjustund Óskars, Valsarar í stuði og tvö draumamörk Íslenski boltinn Ítalía myndi ekki þiggja boðsmiða á HM Fótbolti Fékk sex leikja bann fyrir hómófóbíu en ekki rasisma Fótbolti Fleiri fréttir „Ef hann er ekki með þá fer allt til fjandans“ Besta-spá kvenna 2026: Baráttan um þann stóra Hávær öskur þjálfaranna heyrðust vel: „Þú sérð það sjálfur!“ Sló met Eiðs Smára Öll mörkin í Bestu: Hetjustund Óskars, Valsarar í stuði og tvö draumamörk „Eigum að ganga gjörsamlega frá þeim“ „Fólk má hafa sínar skoðanir“ „Ágætis próf fyrir okkur að fá svona rassskellingu“ „Geðveikt að fá fulla Þórsstúku á nýjum velli“ Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Valsmenn gengu frá FH-ingum í fyrri Þór Ak. - Fram 1-0 | Aron Birkir hélt markinu hreinu í vígsluleiknum Aron pirraður: „Algjör óþarfi“ „Tölum saman eftir sex mánuði“ „Við litum út eins og þriðji flokkur“ ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga Mark ársins í Bestu deildinni komið? Besta-spá kvenna 2026: Sjónarmunur á sterkum liðum ÍA - KA 1-1 | Færanýting fjandans „Ég er ekkert órólegur“ „Það er eiginlega óskiljanlegt“ Keflavík 0-0 Breiðablik | Litlaust í fyrsta grasleiknum Markaskorari sem svífur framhjá leikmönnum HK, Grótta, Fylkir og Þróttur á leið í Bestu deildirnar? Valur keypti Samúel Kára fyrir mikið fé Besta-spá kvenna 2026: Baráttan á botninum Valsmenn opna veskið til að landa Samúel Kára Valsmönnum fjölgar í Mosfellsbæ Breiðabliki spáð titli en Val neðri helmingi Sjálfstæðisflokkur langstærstur í Bestu deild kvenna Sjá meira