Hart tekist á um fundarsköp í þinginu Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 23. júlí 2009 12:30 Mynd úr safni.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, þingforseti, áminnti fjóra þingmenn í röð fyrir að tala um annað en fundarstjórn forseta undir samnefndum dagskrárlið þingsins í dag. Sló Ásta fjölmörg slög í þingklukkuna og bjölluhljóðin ómuðu um þingsalinn, en þetta er ekki í fyrsta sinn sinn sem forseti hefur neyðst til að áminna þingmenn af þessu tilefni. Fyrst mælti Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, um þörfina á því að innleiða eineltisáætlun í Alþingi, eins og Vísir greindi frá fyrr í dag. Þá ræddu Birgir Ármannsson og Tryggvi Þór Herbertsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, um þá ákvörðun að taka Icesave málið úr utanríkis- og efnahags- og skattanefnd í gær. Truflaði forseti mál Tryggva áður en ræðutíminn var liðinn og benti honum á að nú ætti hann að ræða fundarstjórn forseta og sagði nefndavinnu ekki varða hana. Síðastur kvað sér hljóðs Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, og sagði þörf á að skýra betur við hvaða tilefni væri rétt að koma skilaboðum áleiðis í þinginu. Guðlaugur fékk fyrir vikið á sig sex bjölluslög, og þurfti þingforseti að benda honum á að þagna þegar hann heyrði í bjöllunni. „Hversu lengi, virðulegur forseti," spurði Guðlaugur áður en honum var gert að yfirgefa pontu á meðan aðrir þingmenn hlógu að orðaskiptum þingmannsins og forsetans. Sjá má upptökur af umræðum um fundarstjórn forseta hér.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Fleiri fréttir „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Sjá meira