Forseti telur sigri stolið af sér 20. október 2009 01:00 Kosið í Afganistan Eftirlitsnefnd telur að allt að fjórðungur atkvæða í forsetakosningunum sé ógildur vegna svindls. Mynd/AP
Nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna hefur úrskurðað að fjöldi atkvæða í forsetakosningum í Afganistan í ágúst sé ógildur vegna kosningasvindls. Stjórnvöld í Kabúl hafa ekki staðfest þetta en þó virðist sem kjósa þurfi að nýju milli þeirra tveggja frambjóðenda sem flest atkvæði fengu í forsetakosningunum. Áður hafa stjórnvöld sagt að niðurstaða kosninganna hafi verið sú að Hamid Karzai, núverandi forseti, hafi fengið 55 prósent atkvæða og væri því réttkjörinn til áframhaldandi setu á forsetastóli með meira en helmings fylgi í fyrstu umferð. Ef marka má nýjustu fréttir fékk Karzai hins vegar aðeins 48 prósent atkvæða og þarf því að etja kappi við þann sem næstflest atkvæði fékk, Abdullah Abdullah utanríkisráðherra. Samkvæmt upphaflegu talningunni fékk Abdullah 28 prósent atkvæða. Karzai forseti hefur sjálfur sagt að hann hafi sigrað í kosningunum strax í fyrstu umferð en kosningaeftirlitsmenn segja sönnunargögn fyrir svindli vera skýr. BBC segir Karzai vera bálreiðan vegna þessarar nýju stöðu. Forsetinn telji að vestræn ríki séu að reyna að hafa af honum sigurinn. Hann muni gera allt sem hann geti til að koma í veg fyrir aðra umferð kosninganna. - gar
Mest lesið Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Innlent Biðst afsökunar en segist hvorki þuklari, flassari né dónakarl Erlent Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Innlent Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Innlent „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Innlent Leita leiða til að kveða ranglega útgefnar sektir í kútinn Fréttir Segir eðlilegast að strandveiðiheimildir verði fyrir utan alla potta Innlent „Góðu fréttirnar eru að það sem hann segir skiptir engu máli“ Erlent Forsætisráðherra segir að átökin gætu færst nær stríði Erlent Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Innlent Fleiri fréttir Líf og fjör í Reykholti í Borgarfirði um helgina á Reykholtshátíð „Ég held að það sé nú best að anda rólega“ Áhugi ungra stráka á Druslugöngunni kom skemmtilega á óvart Mögulegir Evróputollar á íslenskar vörur, lundastofn í rénun og Druslugangan Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Segir eðlilegast að strandveiðiheimildir verði fyrir utan alla potta Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Áfram gýs úr einum gíg „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Eldri borgarar í Vogum leiddu knattspyrnumenn inn á völlinn ESB leggur til tolla á Ísland: „Þetta er bara tillaga sem er á borðinu“ Uppsagnir sjómanna í Grindavík: „Hvenær er nóg, nóg?“ Vilja innlima Vesturbakkann og deilu um göngustíg lýkur með vöfflum Handtekinn vegna ólöglegs vopnaburðar Bilun í flugstjórn olli um tveggja tíma seinkun Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Keyrt á íslenska stráka á Ólympíuhátíð Ekki þeir sömu og voru handteknir vegna fyrri þjófnaðarins Minni helst á þjóðarmorð Serba á múslimum í Bosníu Hneig niður vegna flogakasts Tekist á um þéttingu byggðar: „Þá getur þú bara flutt til Kaupmannahafnar“ Lögreglan leitar tveggja manna Frakkar viðurkenna Palestínu og stjórnarandstaðan á Alþingi mælist illa í nýrri könnun Óánægja með stjórnarandstöðuna eykst hressilega Amgen sver af sér njósnir um starfsfólk Íslenskrar erfðagreiningar Hundurinn gerði vart um mann sem stóð og starði inn Hægt nokkuð á virkninni frá því í gærmorgun Sjá meira