Biðjum Breta og Hollendinga um sanngjarna lausn Heimir Már Pétursson skrifar 2. október 2009 19:39 Forystumenn ríkisstjórnarinnar. Mynd/Anton Brink
Fjármálaráðherra hélt í dag til Istanbúl í Tyrklandi á ársfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þar sem hann mun eiga viðræður við forráðamenn sjóðsins og fjármálaráðherra Bretlands og Hollands um Icesave deiluna. Forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin muni ekki springa á þessu máli en treysti sér ekki að svo stöddu að leggja það aftur fyrir Alþingi. Forystumenn stjórnarflokkanna leggja mikla áherslu á að ljúka Icesave málinu sem fyrst, enda hangi svo margt annað í endurreisn efnahagslífsins saman við það. Fjármálaráðherra segir fundinn með stjórnarandstöðunni í morgun hafa verið betri en sams konar fund eftir að viðbrögð Breta og Hollendinga bárust fyrir nokkrum vikum. Viðræðum við þjóðirnar sé ekki lokið. „Þetta eru þreifingar, tilraunir til að reyna að finna leiðir til lausnar í málinu," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Þetta sé gert án skuldbindinga að beggja hálfu þar til árangur hafi náðst. Þetta sé staðan í málinu í dag. Forsætisráðherra segir óhjákvæmilegt að málið fari aftur fyrir Alþingi en það sé ekki komið í þann búning að ríkisstjórnin treysti sér til að leggja það fyrir þingið. Hún telur þó enga hættu á að ríkisstjórnin springi vegna málsins. „Ef við fáum ásættanlega niðurstöðu sem þingflokkarnir treysta sér til að fara með fyrir þingið mun þessi ríkistjórn ekki springa á þessu máli, segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. Það velti meira á því hvort ríkisstjórnin fái slíka niðurstöðu í viðræðum við Breta og Hollendinga að ríkisstjórnin treysti sér til að fara með málið fyrir Alþingi. „En ríkisstjórnin er ekki í hætti hvað varðar þetta mál," segir forsætisráðherra. Jóhanna segir málið til meðferðar á mörgum stöðum en brugðið geti til beggja vona hvort samningar náist. „Þeir vita hvað þetta er erfitt fyrir okkur og við erum bara að biðja Hollendinga og Breta um sanngjarna lausn á þessu máli. En það er alveg ljóst að málið hefur á síðustu einum til tveimur dögum verið okkur erfiðara en við töldum í upphafi," segir Jóhanna.
Mest lesið Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Innlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Fleiri fréttir Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Sjá meira