Innlent

Hugsanlega lærbrotinn eftir vélhjólaslys

Lögreglan á vaktinni.
Lögreglan á vaktinni.

Fjórir einstaklingar voru fluttir á spítala eftir að vélhjól og bifreið lentu í árekstri á Korpúlfsstaðarvegi í Grafarvogi í kvöld. Atvikið átti sér stað á áttunda tímanum.

Enginn slasaðist alvarlega samkvæmt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en þó má telja líklegt að vélhjólamaðurinn hafi lærbrotnað. Það er þó ekki staðfest.

Lögreglan kannar tildrög slyssins sem voru enn óljós þegar Vísir hafði samband við varðstjóra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×