Hiddink varaður við StunGun Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. mars 2009 11:30 Aron Einar Gunnarsson í leik með Coventry. Nordic Photos / Getty Images
The Sun fjallar í dag um leik Chelsea og Coventry sem hefst klukkan 12.30 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sporti. Fjallað er sérstaklega um löngu innköstin hans Arons Einars Gunnarssonar - sem er nefndur StunGun í greininni - en hann lagði einmitt upp mark fyrir Coventry með innkasti á miðvikudagskvöldið. Minnst er á innköstin frægu hjá Rory Delap, leikmanni Stoke, og sagt að Aron Einar sé enginn eftirbátur hans. Eins og margoft hefur komið fram lærði Aron kasttækni sína með því að spila handbolta. Það þykir mörgum Bretum furðulegt enda er handbolti nánast óþekkt þar í landi. Bróðir Arons, Arnór Þór Gunnarsson, er einn allra besti hornamaður N1-deildar karla í handbolta en hann leikur með Val. Aron rifjar upp í samtali við The Sun að hann hafi ekki sagt neinu frá innköstum sínum áður en hann kom til félagsins. „Við vorum á undirbúningstímabilinu í Austurríki og hitt liðið var að setja pressu á okkur hjá hornfánanum. Boltinn fór margoft út af og bað ég um að fá að taka innkast. Ég þrykkti boltanum yfir á hinn vallarhelminginn og menn voru nokkuð gáttaðir." „Svo þegar tímabilið hófst sögðu einhverjir að ég væri með alveg eins innkast og Rory Delap sem ég hafði ekki hugmynd um hver væri." „Svo sá ég hann í sjónvarpinu. Hann getur kastað langt en ég er viss um að ég geti kastað lengra. En við notum greinilega sömu tæknina."
Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Formúla 1 Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Fótbolti Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Fótbolti Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Körfubolti Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Handbolti Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Fótbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Fleiri fréttir Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Sjá meira