Enski boltinn

Manchester City langt frá því að vera hætt - Beckham næstur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
David Beckam sést hér með Zinedine Zidane.
David Beckam sést hér með Zinedine Zidane. Mynd/AFP

Kaupæði Manchester City virðist engan enda ætla að taka og nú eru erlendir netmiðlar farnir að greina frá því að liðið ætli að koma með David Beckham aftur í ensku úrvalsdeildina.

David Beckham sagðist í viðtölum í dag vera opinn fyrir því að koma aftur í ensku deildina en hann er enn leikmaður bandaríska liðsins Los Angeles Galaxy. Beckham var í láni hjá AC Milan eftir áramót á síðasta tímabili en snéri aftur til Bandaríkjanna eftir veturinn.

Kaup Manchester City á Beckham yrði ekki bara hugsuð til þess að styrkja liðið inn á vellinum heldur einnig myndu þau styrkja markaðsstöðu félagsins. Mörg félög hafa reynt að nýta sér vinsældir og heimsfrægð Beckham síðustu ár og City verður þar engin undantekning.

Beckham er orðinn 34 ára gamall en núverandi samningur hans við Los Angeles Galaxy nær til ársins 2012.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×