Enski boltinn

Enska 1. deildin: Góður dagur hjá Íslendingaliðunum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Aron Einar og félagar unnu góðan sigur í dag.
Aron Einar og félagar unnu góðan sigur í dag. Nordic Photos/Getty Images

Íslendingaliðin í ensku 1. deildinni gerðu það gott í dag. Aron Einar Gunnarsson og félagar í Coventry lögðu Doncaster, 1-0, með marki David Bell. Aron Einar lék allan leikinn með Coventry.

Jóhannes Karl Guðjónsson sat á bekknum hjá Burnley allan leikinn er liðið lagði Plymouth, 1-2.

Heiðar Helguson lék síðustu 30 mínúturnar þegar lið hans QPR lagði Bristol, 2-1.

Staðan í ensku 1. deildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×