Enski boltinn

Terry verður fyrirliði Chelsea næstu árin

Elvar Geir Magnússon skrifar
John Terry á æfingu með landsliðinu.
John Terry á æfingu með landsliðinu.

„John Terry er fyrirliði Chelsea og mun bera uppi merki félagsins í mörg ár í viðbót," segir Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri Chelsea. Félagið hefur ítrekað neitað því að Terry sé á förum en Manchester City vill krækja í leikmanninn.

„Hann er ekki á förum, hann verður fyrirliði Chelsea næstu árin," segir Ancelotti. Fréttir enskra miðla í gær herma að Terry sé í viðræðum við Chelsea um nýjan samning og vonast er til að gengið verði frá honum bráðlega.

Athygli hefur vakið að Terry sé enn ekki búinn að tjá sig opinberlega um þessi mál og hefur hvorki játað né neitað.

Þess má svo geta í framhaldi af þessu að Chelsea er orðað við Andrea Pirlo, miðjumann AC Milan. Ancelotti vildi ekki neita því þegar þær fréttir voru bornar undir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×