ÍA áfrýjaði rauða spjaldi Stefáns Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. maí 2008 12:17 Stefán Þór Þórðarson, leikmaður ÍA.
ÍA hefur áfrýjað rauða spjaldinu sem Stefán Þór Þórðarson fékk í leik Keflavíkur og ÍA á sunnudagskvöldið. Þetta staðfesti Gísli Gíslason, formaður meistaraflokksráðs karla hjá ÍA. Gísli sagði að hann hefði sent inn greinagerð til aga- og úrskurðarnefndar KSÍ þar sem athugasemdir eru gerðar við síðara gula spjaldið sem Stefán fékk í leiknum. „Það fylgir myndbandsupptaka sem sýnir að það átti sér stað engin snerting hjá Stefáni og að hann hafi einungis farið í boltann," sagði Gísli. „Við höfum því farið fram á að þessi yfirsjón verði leiðrétt." Hér í fréttinni að neðan má skoða atvikin bæði sem Stefán var áminntur fyrir. Í kjölfarið á þessu sagði Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, að Ólafur Ragnarsson dómari leiksins hefði beitt Stefán ofbeldi með því að vísa honum af velli. Einnig að dómarar hefðu hist sérstaklega á fundi til að ákveða hvernig væri best að taka á Skagamönnum og þá sérstaklega Stefáni. Áfrýjunin tengist þó ekkert ummælum Guðjóns en aganefndin mun mjög líklega fara fram á greinagerð frá honum vegna ummælanna. Þórir Hákonarson, framkvæmdarstjóri KSÍ, skaut ummælum hans til aganefndarinnar. Það er þó ólíklegt að nefndin geti tekið myndbandsupptökuna sem Gísli sendi með greinagerð sinni til nefndarinnar. Í reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál segir eftirfarandi: „Það er grundvallarregla að myndbandsupptökur skulu ekki notaðar við ákvörðun viðurlaga vegna agabrota. Ef það er hins vegar mat nefndarinnar að fyrirliggjandi gögn séu ófullnægjandi sem grundvöllur er nefndinni heimilt sem síðasta úrræði að styðjast við myndbandsupptökur. Í slíkum tilfellum skal einungis heimilt að nota upptökur frá viðurkenndum sjónvarpsstöðvum." Þar sem dómari leiksins tók afstöðu til brotsins á vellinum er afar ólíklegt að nefndin muni nota myndbandsupptöku til að hnekkja ákvörðun hans.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Stefán Þór: Ég fór í boltann Stefán Þór Þórðarson segir engan vafa leika á því að hann hafi farið í boltann þegar hann fékk síðara gula spjaldið sitt í leik ÍA og Keflavíkur í gær. 26. maí 2008 11:25 Átti Stefán spjöldin skilið? (myndband) Stefán Þórðarson fékk tvívegis að líta gula spjaldið í leik Keflavíkur og ÍA í gær og þar með það rauða, Skagamönnum til mikillar gremju. 26. maí 2008 10:29 Birkir: Dómarar hafa ekkert rætt um Stefán Birkir Sveinsson, starfsmaður KSÍ og meðlimur dómaranefndar, segir að ekkert sé hæft í ásökunum Guðjóns Þórðarsonar. 26. maí 2008 10:05 Guðjón stendur við ummæli sín Guðjón Þórðarson sagði í samtali við Vísi að hann standi heilshugar við þau ummæli sem hann lét falla eftir leik Keflavíkur og ÍA í gær. 26. maí 2008 12:25 Ólafur: Guðjón er að bulla Ólafur Ragnarsson dómari segir ekkert hæft í ásökunum Guðjóns Þórðarsonar í sinn garð né heldur annarra dómara. 26. maí 2008 11:10 Guðjón: Þeirra er skömmin (myndband) Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, var ómyrkur í máli gagnvart Ólafi Ragnarssyni dómara og forystumönnum KSÍ í viðtali við Stöð 2 Sport í gær. 26. maí 2008 09:28 Guðjón gæti fengið margra leikja bann Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ er heimilt að úrskurða Guðjón Þórðarson í meira en eins leiks bann. 26. maí 2008 13:25 Þórir: Málið í aganefnd Þórir Hákonarson, framkvæmdarstjóri KSÍ, mun skjóta ummælum Guðjóns Þórðarsonar til aga- og úrskurðarnefndar KSÍ. 26. maí 2008 10:58 Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira
Stefán Þór: Ég fór í boltann Stefán Þór Þórðarson segir engan vafa leika á því að hann hafi farið í boltann þegar hann fékk síðara gula spjaldið sitt í leik ÍA og Keflavíkur í gær. 26. maí 2008 11:25
Átti Stefán spjöldin skilið? (myndband) Stefán Þórðarson fékk tvívegis að líta gula spjaldið í leik Keflavíkur og ÍA í gær og þar með það rauða, Skagamönnum til mikillar gremju. 26. maí 2008 10:29
Birkir: Dómarar hafa ekkert rætt um Stefán Birkir Sveinsson, starfsmaður KSÍ og meðlimur dómaranefndar, segir að ekkert sé hæft í ásökunum Guðjóns Þórðarsonar. 26. maí 2008 10:05
Guðjón stendur við ummæli sín Guðjón Þórðarson sagði í samtali við Vísi að hann standi heilshugar við þau ummæli sem hann lét falla eftir leik Keflavíkur og ÍA í gær. 26. maí 2008 12:25
Ólafur: Guðjón er að bulla Ólafur Ragnarsson dómari segir ekkert hæft í ásökunum Guðjóns Þórðarsonar í sinn garð né heldur annarra dómara. 26. maí 2008 11:10
Guðjón: Þeirra er skömmin (myndband) Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, var ómyrkur í máli gagnvart Ólafi Ragnarssyni dómara og forystumönnum KSÍ í viðtali við Stöð 2 Sport í gær. 26. maí 2008 09:28
Guðjón gæti fengið margra leikja bann Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ er heimilt að úrskurða Guðjón Þórðarson í meira en eins leiks bann. 26. maí 2008 13:25
Þórir: Málið í aganefnd Þórir Hákonarson, framkvæmdarstjóri KSÍ, mun skjóta ummælum Guðjóns Þórðarsonar til aga- og úrskurðarnefndar KSÍ. 26. maí 2008 10:58