Enski boltinn

McClaren hefur áhuga á Blackburn

NordcPhotos/GettyImages

Knattspyrnustjórinn Steve McClaren segist hafa áhuga á því að taka við liði Blackburn í ensku úrvalsdeildinni, en þar vantar mann eftir að Mark Hughes samþykkti að taka við Manchester City.

McClaren viðurkenndi í samtalil við BBC að sér hefði mistekist með enska landsliðið á sínum tíma, en segir að hann vilji ólmur snúa sér að þjálfun á ný. Hann stýrði síðast Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×